16. júní 2026
17. júní 2026
Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,39 prósent í maí 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala leiguverðs mældist 129,3 stig í maí og hækkaði um 0,39 prósent á milli mánaða
- Vísitalan hækkaði um 4,87 prósent milli maímánaða 2025 og 2026, á sama tíma og verðbólga mældist 5,1 prósent
- Leiguverð hefur lækkað um 0,24 prósent að raunvirði undanfarið ár
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 129,3 stig í maí og hækkaði um 0,39 prósent á milli mánaða. Vísitalan hefur hækkað um 4,87 prósent á undanförnum 12 mánuðum, á sama tíma og verðbólga mældist 5,1 prósent og íbúðaverð hækkaði um 2,16 prósent. Leiguverð hefur því lækkað lítillega að raunvirði undanfarna 12 mánuði, eða um 0,24 prósent.
Tólf mánaða taktur leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði að nafnvirði annan mánuðinn í röð en vístalan hækkaði um 5,66 prósent milli aprílmánaða 2025 og 2026 og um 6,32 prósent milli marsmánaða 2025 og 2026.
Til að tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs haldi áfram að lækka í júní þarf vísitalan að lækka meira en hún gerði milli maí- og júnímánaðar í fyrra þegar hún lækkaði um 0,41 prósent milli mánaða.
Hægt er að nálgast mælaborð fyrir vísitölur HMS með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo maígildi hennar tekur mið af leigusamningum í apríl og maí.
Leiguverð hefur lækkað lítillega að raunvirði síðastliðna tólf mánuði
Síðastliðna 12 mánuði hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan, lækkað um 0,24 prósent að raunvirði samkvæmt maímælingu. Milli aprílmánaða 2025 og 2026 hækkaði leiguverð um 0,39 prósent að raunvirði og um 0,87 prósent milli marsmánaða 2025 og 2026.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Tilgangur leiguvísitölunnar er að endurspegla þróun á markaðsvirði leigu en vísitalan er ekki ætluð til vísitölubindingar á leigusamningum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




