28. október 2026
Opið fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð
- Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2026
- Við úthlutun 2026 verður lögð sérstök áhersla á þrjá flokka innan rannsóknaþarfar í húsnæðis- og mannvirkjagerð
Askur mannvirkjarannsóknarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði húsnæðis- og mannvirkjagerðar. Alls eru 187,5 milljónir króna til úthlutunar. Sjóðurinn er fjármagnaður sameiginlega af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og HMS.
Háskólasamfélagið, rannsókna- og nýsköpunargeirinn, opinberir aðilar og atvinnulífið eru hvött til samstarfs um metnaðarfull verkefni sem leiða til hagnýtra lausna, bæta ákvarðanatöku og auka skilvirkni með nýsköpun og tækni. Áhersla er lögð á að niðurstöður séu hagnýtar og skili ávinningi fyrir mannvirkjagerð á Íslandi og samfélagið í heild.
Áhersluflokkar Asks 2026
Við úthlutun 2026 verður lögð sérstök áhersla á þrjá flokka innan rannsóknaþarfar í húsnæðis- og mannvirkjagerð:
Viðhald og endurbætur
Verkefni sem styðja markvissara viðhald, endurbætur og lengri líftíma þegar byggðra mannvirkja.
Byggingarvörur, byggingarhlutar og byggingaraðferðir
Verkefni um eiginleika byggingarvara, byggingarhluta og tæknilausna miðað við íslenskar aðstæður.
Sjálfbærni
Verkefni sem draga úr umhverfisáhrifum, styðja hringrásarhagkerfið og bæta orkunýtni.
Uppfærðar starfsreglur
Starfsreglur sjóðsins hafa verið uppfærðar og eru umsækjendur eru hvattir til að kynna sér þær vel. Endurskoðunin nær einkum til eftirfarandi kafla:
- Skilyrði styrkhæfra verkefna
- Styrkhæfur kostnaður
- Fylgigögn
- Meðferð og mat umsókna
- Áfanga- og lokaskýrslur
Fyrirkomulag úthlutunar
Til að tryggja stuðning við fjölbreytt og öflug verkefni verður 20% heildarfjármagns varið til styrkhæfra verkefna í hverjum hinna þriggja áhersluflokka. Þá renna 20% til hæst metnu styrkhæfu verkefnanna sem falla utan áhersluflokkanna, það er verkefna sem falla ekki undir neinn flokkanna þriggja. Það fjármagn sem eftir stendur rennur til þeirra styrkhæfu verkefna sem fá hæstu einkunn, hvort sem þau falla innan eða utan áhersluflokkanna.
Umsóknarferli
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2026.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér uppfærðar starfsreglur og tryggja að allir viðeigandi kaflar umsóknarforms séu útfylltir og umbeðnar upplýsingar liggi fyrir.
Nánari upplýsingar fást hjá Aski mannvirkjarannsóknarsjóði í netfanginu askur@hms.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




