23. október 2026
Horfur um íbúðafjárfestingu hafa versnað
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Greiningaraðilar spá meiri samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár í kjölfar þess að verulega hefur hægt á fjölgun nýrra byggingarframkvæmda
- Dregið hefur úr útlánum til byggingaraðila frá fyrsta ársfjórðungi
- Samsetning íbúða í byggingu er keimlíkur framboði óseldra nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu
Greiningardeildir bankanna hafa fært niður spár sínar um íbúðafjárfestingu frá því í vor í nýlegum þjóðhagsspám. Bankarnir gera allir ráð fyrir samdrætti í ár, en þá greinir á um þróun til næstu ára. Á sama tíma hefur dregið úr hreinum nýjum útlánum banka til byggingaraðila frá því á fyrsta ársfjórðungi. Meirihluti íbúða í byggingu er í stórum fjölbýlum, líkt og meirihluti nýrra íbúða til sölu. Niðurstöður könnunar um búsetuóskir benda aftur á móti til þess að hlutfallslega fáir sjái fyrir sér að búa í stórum fjölbýlum í framtíðinni.
Þetta er á meðal þess sem fjallað er um í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir októbermánuð sem gefin var út í gær. Skýrsluna í heild sinni má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Mánaðarskýrsla HMS fyrir október 2026
Bankarnir spá meiri samdrætti í íbúðafjárfestingu en áður
Stóru viðskiptabankarnir þrír spá allir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár, en eru ósammála um hvenær hún taki við sér á ný. Íslandsbanki spáir 6,4% samdrætti í ár, Landsbankinn 6,7% og Arion banki 8,2%. Munurinn á spám bankanna er þó mestur á næsta ári, þegar Íslandsbanki gerir ráð fyrir hóflegum vexti en Landsbankinn og Arion banki spá áframhaldandi samdrætti.
Greiningardeildir allra bankanna þriggja hafa fært niður spár sínar fyrir íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári síðan í vor. Í umfjöllun bankanna er meðal annars bent á að hæg sala nýrra íbúða og hár fjármagnskostnaður þrengi að byggingaraðilum og dragi úr svigrúmi til nýrra verkefna. Arion banki og Landsbankinn vísa jafnframt til septembertalningar HMS og fækkunar nýrra framkvæmda milli talninga.
Dregið hefur úr nýjum útlánum til byggingaraðila
Hrein ný útlán banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar námu alls 1,5 milljörðum króna í ágúst síðastliðnum. Verulega hefur dregið úr nýjum útlánum til byggingaraðila á undanförnum mánuðum, en hrein ný útlán frá apríl fram í ágúst námu um 18 milljörðum króna á föstu verðlagi samanborið við um 52 milljarða króna á frá nóvember fram í mars.
Þrátt fyrir að hrein ný útlán banka til byggingaraðila hafi dregist saman frá fyrsta ársfjórðungi þessa árs hafa útlán frá mars til ágúst verið meiri að umfangi heldur en á sama tíma í fyrra. Miðað við fast verðlag var fjárhæð hreinna nýrra útlána á tímabilinu tæplega 13% hærri í ár en í fyrra.
Meirihluti íbúða í byggingu og nýrra íbúða til sölu er í stórum fjölbýlishúsum
Samsetning íbúða í byggingu og nýrra íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu er keimlík. Meirihluti íbúðanna, eða 64 til 65%, er í stórum fjölbýlum, þ.e. fjölbýlum með 17 eða fleiri íbúðum í stigagangi. Næst flestar, eða í kring um 19 til 22% eru í meðalstórum fjölbýlum, með 9-16 íbúðum í stigagangi en um 5 til 6% eru í smærri fjölbýlum, með 5-8 íbúðum í stigagangi, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Til hliðsjónar voru svarendur í könnun HMS um búsetu- og skipulagsóskir á höfuðborgarsvæðinu frá byrjun árs 2026 spurðir hvernig þeir telja sig munu búa eftir fimm ár. Samkvæmt könnuninni töldu 6% svarenda að þeir muni búa í stóru fjölbýli í framtíðinni, á meðan 25% þeirra töldu sig munu búa í einbýli og 20% þeirra töldu sig munu búa í raðhúsi eða parhúsi. Samsetning nýrra íbúða til sölu og í byggingu fer því ekki að öllu leyti saman við væntingar svarenda um framtíðarbúsetu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




