30. október 2026

Rb-blað mánaðarins: Gólfhitakerfi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Gólfhitakerfi dreifa hita um stóran flöt og geta þannig stuðlað að jafnri hitadreifingu í rými
  • Kerfin vinna við mun lægra vatnshitastig en hefðbundin hitaveita
  • Vönduð hönnun og framkvæmd skiptir miklu þar sem lagnir gólfhitakerfa eru innsteyptar í gólf

Í rúma hálfa öld hafa Rb-tækniblöðin miðlað þekkingu og leiðbeiningum um mannvirkjagerð og byggingartækni. Samhliða útgáfu nýrra Rb-blaða er því tilefni til að rifja upp eldri blöð sem enn hafa notagildi og eiga erindi við mannvirkjagerð í dag.

Nú þegar kaldari árstími er genginn í garð er við hæfi að huga að upphitun húsnæðis. Rb-blað mánaðarins að þessu sinni er Gólfhitakerfi, Rb (53).010. Blaðið var upphaflega gefið út í nóvember 1998 og endurskoðað í apríl 2008.

Gólfhitakerfi Rb (53).010

Gólf­hita­kerfi

Í gólfhitakerfi er plaströrum komið fyrir í gólfinu og heitt vatn látið renna um lagnirnar. Varminn berst í gegnum gólfið og þaðan út í rýmið. Þar sem hitunarflöturinn er stór verður hitadreifing frá gólfi og upp í loft jafnari en við ýmsar aðrar upphitunaraðferðir.

Í Rb-blaðinu er fjallað um bæði kosti og galla gólfhitakerfa. Meðal kosta eru jafn og þægilegur gólfhiti, faldar lagnir og að ekki þurfi hefðbundna ofna í rýminu. Framrásarhitastig vatns í gólfhitakerfi er samkvæmt blaðinu að jafnaði um 35–40 °C og er því mun lægra en venjubundið hitastig hitaveituvatns.

Kerfin hafa þó einnig sína veikleika. Þar sem lagnirnar eru innsteyptar getur verið erfitt og kostnaðarsamt að komast að þeim ef bilun verður. Einnig þarf að fara varlega þegar borað er í gólf eða þau brotin upp vegna hættu á að skemma lagnir.

Vanda þarf hönn­un og lagn­ingu

Í blaðinu er lögð áhersla á að vanda hönnun og verklag við lagningu gólfhitakerfa. Fjallað er meðal annars um efnisval, stýringu vatnshita, tengingar, lagnaaðferðir og staðsetningu deiligrinda.

Tvö algeng lagnamynstur eru tekin fyrir, lykkjur og spírall. Þegar lagt er í spíral liggja framrásar- og bakrásarrör hlið við hlið og verður gólfhitastigið því jafnara samkvæmt blaðinu.

Einnig þarf að taka mið af aðstæðum í hverju rými. Til dæmis kemur fram að leggja þurfi gólfhitarör þéttar við útveggi til að vega upp á móti kulda að utan og að hvert rými þurfi að jafnaði sérlögn svo hægt sé að stýra innihita.

Rb-blaðið veitir þannig hagnýtt yfirlit yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við hönnun, lagningu og frágang gólfhitakerfa.

Önnur útgefin Rb-blöð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS