16. september 2026

Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,15 prósent í ágúst 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,15 prósent á milli mánaða eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð
  • Tólf mánaða hækkun leiguverðs mælist 4,24 prósent og hefur ekki verið minni síðan í desember 2021
  • Leiguverð hefur lækkað um 1,31 prósent að raunvirði á síðustu tólf mánuðum

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 130,2 stig í ágúst og lækkaði um 0,15 prósent á milli mánaða. Þetta er fyrsta lækkun vísitölunnar frá því í janúar en hún hafði hækkað sex mánuði í röð frá febrúar til júlí. Í júlí hækkaði vísitalan um 0,46 prósent og í júní hækkaði hún um 0,39 prósent.

Þrátt fyrir lækkunina í ágúst hefur vísitalan hækkað um 0,70 prósent síðustu þrjá mánuði og um 3,33 prósent síðustu sex mánuði. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 4,24 prósent, samanborið við 4,74 prósenta hækkun í júlí. Árshækkun leiguverðs hefur því minnkað frá fyrri mánuði.

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo ágústgildi hennar tekur mið af leigusamningum í júlí og ágúst.

Þegar horft er lengra aftur sést að verulega hefur dregið úr tólf mánaða hækkun leiguverðs. Árshækkunin náði 15,1 prósenti í júlí 2024 en hefur síðan farið almennt lækkandi, þótt nokkrar sveiflur hafi verið á milli mánaða. Tólf mánaða hækkunin mælist nú sú minnsta síðan í desember 2021.

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS