6. júlí 2026

Viðmiðunargildi fyrir kolefnisspor nýbygginga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS gefur út viðmiðunargildi kolefnisspors nýbygginga á Íslandi, byggð á nýjum gögnum
  • Greining á kolefnisspori byggingariðnaðarins á Íslandi sýnir að án breytinga munu loftslagsmarkmið fyrir byggingariðnað ekki nást
  • HMS stefnir að innleiðingu hámarksgilda á kolefnisspor nýbygginga haustið 2027

HMS setur fram viðmiðunargildi fyrir kolefnisspor nýbygginga á Íslandi sem eru byggð á nýjum gögnum og lýkur þannig aðgerð 5.1.6. í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030. Síðan að krafa um lífsferilsgreiningar tók gildi 1. september 2025 hafa HMS borist gögn um kolefnisspor nýbygginga. Viðmiðunargildin eru meðaltöl kolefnisspors nýbygginga yfir líftíma þeirra.

Jafnframt sýna gögnin að framleiðsla byggingarefna er stærsti losunarvaldur bygginga yfir lífsferil þeirra eða 46%.

Myndin sýnir meðaldreifingu kolefnisspors nýbygginga eftir lífsferilsfösum.

Ítarlegri greining áætlar að árlegt kolefnisspor byggingariðnaðarins í heild sé 391.000 tCO2íg*** sem er  9% hærra en áætlað var í fyrra mati. Nýja matið á kolefnisspori byggingariðnaðarins sýnir því að án breytinga verður markmiði um samdrátt í losun byggingariðnaðarins ekki náð

Samantekt á gögnunum sýnir jafnframt að kolefnisspor bygginga á íslenskum markaði er mjög breytilegt. Lægstu gildin eru rúmlega 40% lægri en meðaltalsgildin, sem bendir til þess að nú þegar séu til raunhæfar leiðir til að hanna og byggja með mun lægra kolefnisspori en núverandi meðaltöl segja til um.

Í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 hafa verið sett markmið um 43% samdrátt í losun byggingariðnaðarins fyrir 2030.

Samantekt – Dreifing á heildarkolefnisspori nýbygginga á Íslandi samkvæmt nýjum LCA gögnum og samanburður við núverandi viðmiðunargildi og markmið.

Mikil tækifæri til að draga úr kolefnisspori byggingariðnaðarins felast í betri nýtingu þess húsnæðis og þeirra mannvirkja sem þegar hafa verið byggð. Þar skiptir máli að lengja líftíma bygginga og auðvelda umbreytingu og endurnýtingu húsnæðis. Þegar byggja þarf nýtt eru helstu tækifæri til árangurs að draga úr efnisnotkun, velja byggingarefni með lægra kolefnisspor og hanna orkunýtnar byggingar.

Viðmiðunargildin eru ekki aðeins stöðumat heldur einnig grunnur að næstu skrefum: skýrari markmiðum, auknu gagnsæi og undirbúningi hámarksgilda fyrir kolefnisspor nýbygginga.

  • HMS leggur til að fyrstu hámarksgildi fyrir kolefnisspor nýbygginga verði sett haustið 2027
  • Samhliða því er lagt til að tímasetningu á LCA skilum verði breytt þannig að skil verði eingöngu við lokaúttekt verkefna

Nákvæmari samantekt má finna hér.

* kgCO₂íg/m2 = Kílógrömm koltvíoxíð-ígilda á brúttófermetra

** Miðað við staðlaðan 50 ára líftíma bygginga (notað til að auðvelda samanburð)

*** tCO2íg = Tonn koltvíoxíð-ígilda

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS