18. nóvember 2026
Útköllum vegna elds í byggingum fjölgaði milli ára
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Útköllum slökkviliða fjölgar á ný eftir að hafa fækkað tvö ár í röð
- Um helmingur útkalla var í öðrum af tveimur hæstu forgangsflokkunum, þar sem líf var talið í hættu og þörf á brýnum viðbrögðum
- Útköll vegna gróðurelda á fyrstu níu mánuðum ársins hafa aldrei verið fleiri
Slökkvilið landsins sinntu fjölbreyttum verkefnum á fyrstu níu mánuðum ársins 2026, allt frá slökkvistarfi og viðbrögðum við umferðarslysum til aðstoðar vegna vatnstjóns. Samkvæmt gögnum úr útkallsskýrslugrunni slökkviliða fjölgaði útköllum á milli ára og settu gróðureldar sérstaklega mark sitt á fyrri hluta ársins. Útköll vegna elds í byggingum voru einnig fleiri en í fyrra og voru þrjú af hverjum fjórum þeirra í öðrum af tveimur hæstu forgangsflokkunum, þar sem líf var talið í hættu.
Útköllum fjölgar eftir fækkun tvö ár í röð
Slökkvilið landsins sinntu 727 útköllum á þriðja ársfjórðungi 2026, samanborið við 683 á sama tímabili í fyrra. Útköllum fjölgaði því um 6 prósent á milli ára. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru skráð 2.118 útköll, samanborið við 1.958 í fyrra, sem er um 8 prósent fjölgun.
Útköllum slökkviliða hefur almennt fjölgað undanfarinn áratug, þótt fjöldinn sveiflist á milli ára. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru þau um 44 prósent fleiri en á sama tímabili árið 2016. Þeim fjölgar nú á ný eftir fækkun árin 2024 og 2025, en þau eru þó enn færri en árið 2023.
Langtímafjölgun útkalla má að stærstum hluta rekja til fleiri útkalla vegna skoðana eða gruns um eld, umferðarslysa og aðstoðar við sjúkrabíl. Saman skýra þessir þrír flokkar nær tvo þriðju af fjölguninni þegar meðalfjöldi útkalla árin 2016–2020 er borinn saman við árin 2021–2025. Mestu munar um útköll vegna skoðunar eða gruns um eld, sem meira en tvöfölduðust að meðaltali á milli tímabilanna. Útköll vegna vatnstjóns og viðvörunarkerfa þar sem ekki var eldur hafa einnig aukist, en útköll vegna staðfestra elda skýra mun minni hluta langtímafjölgunarinnar.
Um helmingur útkalla í tveimur hæstu forgangsflokkunum
Útköll slökkviliða eru flokkuð eftir því hversu brýn þörfin er fyrir viðbrögð. Í F1 er líf í bráðri hættu og í F2 er líf í hættu. F3 nær til útkalla þar sem aðgerða er þörf en ekki er talin lífshætta. F4 nær til útkalla og verkefna sem krefjast ekki tafarlausra viðbragða.
Á fyrstu 9 mánuðum ársins 2026 voru um 50 prósent útkalla í tveimur hæstu forgangsflokkunum, F1 og F2. Þar af voru um 11 prósent í F1 og 39 prósent í F2. Um 47 prósent voru í F3 og 3 prósent í F4.
Eins og myndin sýnir hefur skipting útkalla eftir forgangi verið nokkuð stöðug undanfarin ár. Útköll í flokkum F2 og F3 hafa verið langstærstur hluti verkefnanna.
Þrjú af hverjum fjórum útköllum vegna elds í byggingum í háum forgangi
Eldur í byggingum getur skapað mikla hættu fyrir fólk og kallar oft á brýn viðbrögð. Það endurspeglast í forgangsflokkuninni. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru um 75 prósent útkalla vegna elds í byggingum í forgangsflokkum F1 eða F2, samanborið við um helming útkalla í heild.
Útköll vegna elds í byggingum voru flest á fyrstu 9 mánuðum ársins 2023 en fækkaði næstu tvö ár þar á eftir. Nú fjölgar þeim á ný, en þau eru þó enn töluvert færri en þegar mest lét. Á þriðja ársfjórðungi fjölgaði útköllum um 21 prósent miðað við sama tímabil í fyrra og voru þau álíka mörg fyrir tveimur árum.
Útköllum í forgangsflokki F2 fjölgaði úr 39 í 56 og skýrði sú fjölgun stærstan hluta fjölgunar útkalla vegna elds í byggingum. Útköllum í hæsta forgangsflokki, F1, fækkaði lítillega, úr 83 í 81. Hlutfall útkalla í F1 og F2 samanlagt var svipað milli ára, en vægi F2 jókst á kostnað F1.
Flest útköll vegna gróðurelda voru fyrir sumarið
Útköll vegna gróðurelda voru 127 á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 50 á sama tímabili í fyrra. Það eru meira en tvöfalt fleiri en í fyrra og mesti fjöldi á þessu tímabili frá 2016.
Fjölgunin varð að mestu á fyrri hluta ársins fyrir sumarið. Eins og HMS fjallaði um í samantekt um fyrsta ársfjórðung voru fyrstu tveir mánuðir ársins óvenju þurrir og snjóléttir. Þurr gróður, meðal annars sina og lúpína, skapaði því mikla eldhættu.
Þurrkanir sköpuðu kjörinn jarðveg fyrir gróðurelda en eldsupptökin tengdust í öllum tilfellum athöfnum fólks. Af 65 útköllum vegna gróðurelda á fyrsta ársfjórðungi voru 18 rakin til flugelda en 47 til íkveikju eða óvarlegrar meðferðar elds. Alls voru 113 útköll vegna gróðurelda á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á þriðja ársfjórðungi voru þau 14, samanborið við fjögur á sama tímabili í fyrra.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




