19. nóvember 2026
Mánaðarskýrsla HMS nóvember 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir nóvember 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að á fasteignamarkaði sé æ algengara að íbúðir seljist undir auglýstu söluverði, en að fyrstu kaupendur hafi ekki náð að semja um lægra verð í jafn miklum mæli og aðrir kaupendur undanfarin ár. Í skýrslunni er einnig fjallað um að hlutdeildarlán hafi komið heimilum á leigumarkaði að góðum notum, en gögn HMS benda til þess að viðtakendur um fjögurra af hverjum tíu hlutdeildarlánum hafi áður verið á leigumarkaði.
Mánaðarskýrsla HMS
Gögn að baki myndum í mánaðarskýrslu
Fyrstu kaupendur eru ólíklegri en aðrir til að kaupa íbúðir undir auglýstu söluverði
Fasteignamarkaðurinn er áfram í lægð, en virkni markaðarins á fyrstu 9 mánuðum ársins er svipuð og á árinu 2023 þegar tekið er tillit til stærðar íbúðastokksins. Tæplega sjö þúsund íbúðir eru nú til sölu á landsvísu og um sjö mánuði tæki að selja allar íbúðir sem eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu miðað við söluhraða síðustu mánaða.
Hlutfallslega fleiri íbúðir hafa selst undir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, en ólíklegra er að nýjar íbúðir seljist með þeim hætti. Fyrstu kaupendur hafa verið ólíklegri en aðrir kaupendur til þess að kaupa íbúðir undir auglýstu söluverði undanfarin ár og á tímabilinu 2020 til 2025 voru þeir jafnframt líklegri en aðrir kaupendur til að kaupa íbúðir yfir auglýstu söluverði.
Fjögur af hverjum tíu hlutdeildarlánum hafa aðstoðað lántaka við að komast af leigumarkaði
Leigumarkaðurinn telur allt að 48 þúsund heimili í ár samkvæmt uppfærðu mati HMS. Hlutdeildarlán hafa aðstoðað leigjendur við að komast af leigumarkaði í eigið húsnæði, en samkvæmt gögnum HMS höfðu viðtakendur um það bil fjögurra af hverjum 10 hlutdeildarlánum verið á leigumarkaði fyrir veitingu hlutdeildarláns.
Raunvextir óverðtryggðra íbúðalána eru lægri en verðtryggðir vextir
Lánamarkaðurinn gæti tekið breytingum á næstunni verði frumvarpsdrög fjármála- og efnahagsráðuneytisins að lögum. Drögin kveða á um að hámarkslánstími verðtryggðra íbúðalána verði almennt 25 ár. Breytingarnar myndu takmarka val lántakenda en ættu þó ekki að skerða aðgengi að íbúðamarkaði þar sem reglur Seðlabankans um greiðslubyrði miða nú þegar við 25 ára hámarkslánstíma verðtryggðra lána.
Ásókn í óverðtryggð íbúðalán hefur aukist á árinu á sama tíma og samhengið á milli verðtryggðra vaxta og óverðtryggðra raunvaxta hefur breyst. Breytilegir raunvextir óverðtryggðra íbúðalána eru nú lægri en breytilegir verðtryggðir vextir, sem er viðsnúningur frá árunum 2024 og 2025 þegar þeir voru alla jafna hærri.
Samdráttur í sementssölu gefur vísbendingar um minni umsvif á byggingarmarkaði næstu árin
Byggingarmarkaðurinn hefur verið afkastaminni en undanfarin ár, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Nýjar fullbúnar íbúðir á landsvísu á fyrstu tíu mánuðum ársins voru rúmlega 13% færri en í fyrra.
Sala á sementi hefur dregist saman undanfarin misseri sem getur verið vísbending um samdrátt í umfangi byggingarframkvæmda til næstu ára, þar á meðal umfangi íbúðauppbyggingar. Það er í samræmi við niðurstöður septembertalningar HMS á íbúðum í byggingu, þar sem meðal annars kom fram að nýjum framkvæmdum á milli talninga hefði fækkað verulega og að horfur um íbúðauppbyggingu til næstu ára hefðu versnað samkvæmt spá HMS.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



