15. september 2026
15. september 2026
Munum við sjá fleiri hjóla- og göngustíga meðfram vegum í dreifbýli?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Sú umræða hefur reglulega dúkkað upp um hvort ekki séu vannýtt tækifæri í að bæta tengingar hjóla- og göngustíga milli vega í dreifbýli
- Í tveimur nýlegum skipulagsáætlunum hafa göngu- og hjólastígar verið teiknaðir inn meðfram vegum á landsbyggðinni
- Fjölgun göngu- og hjólastíga í dreifbýli er í samræmi við áherslur A.2 og B.4 um skipulag í dreifbýli í gildandi Landskipulagsstefnu
Í gegnum tíðina hefur umræða dúkkað upp um hvort ekki séu vannýtt tækifæri í að bæta tengingar hjóla- og göngustíga milli vega í dreifbýli.
Þekkt er í Evrópu að sum svæði trekkja að sér ferðamenn í skipulagðar hjóla- eða gönguferðir, eins og til dæmis Móseldalurinn. Víða erlendis, til að mynda á Norðurlöndum hefur verið fjárfest í viðamikilli uppbyggingu hjólreiðastíga meðfram vegum sem tengja byggðir saman.
Hérlendis er enginn Móseldalur en Mosfellsdalur er þó nokkuð fjölfarin hjólaleið á Þingvallavegi. Þar er hjólað á veginum en ekki á sérstökum hjóla- eða göngustíg. Svipaða sögu er að segja á fleiri stöðum um landið.
Göngu- og hjólastígar í nýlegum skipulagsáætlunum
Í tveimur nýlegum skipulagsáætlunum hafa göngu- og hjólastígar verið teiknaðir inn meðfram vegum á landsbyggðinni. Þá eru uppi áform um að auka öryggi hjólandi og gangandi við Þingvallaveg í Mosfellsdal. Slíkir göngu- og hjólastígar eru þegar til staðar á nokkrum svæðum hérlendis, t.a.m. á Akureyri, Selfoss, við Ísafjörð og Ólafsvík.
Mál á borði HMS og bíður birtingar í B-deild Stjórnartíðinda. Deiliskipulagið tekur til Þorlákshafnarvegar í heild sinni og snýr að áformum um fækkun vegtenginga og lagningu nýrra héraðsvega samsíða honum auk göngu-, reið- og hjólastíga.
Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar
Mál á borði HMS og bíður staðfestingar. Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst gerð nýrra göngu- og hjólreiðastíga meðfram helstu vegum í sveitarfélaginu. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu.
Kynning á forhönnun á Þingvallavegi við Mosfellsdal
Í kynningu á forhönnun í janúar 2026 á Þingvallavegi kom fram að breikka ætti vegaxlir Þingvallavegar úr 0,3 m í 1,0 m til að auka öryggi hjólandi vegfarenda. Þá er ætlunin að göngu og hjólastígur í Mosfellsdal færist aðeins fjær Þingvallavegi.
Mynd úr kynningu Eflu á forhönnun Þingvallavegar, þversnið Þingvallavegar
Fjölbreyttir ferðamátar í landsskipulagsstefnu
Fjölgun göngu- og hjólastíga í dreifbýli er í samræmi við áherslur A.2 og B.4 um skipulag í dreifbýli í gildandi Landskipulagsstefnu. Þar er mælt fyrir um að skipulag feli í sér stefnu og skipulagsákvæði um innviði fyrir loftslagsvænar samgöngur. Í tilmælum um framfylgd við skipulagsgerð í dreifbýli kemur fram að þar verði eftir því sem kostur er, skilyrði fyrir samtengdu kerfi samgangna, með áherslu á virkan ferðamáta og almenningssamgöngur. Í áherslu B.4. er jafnframt kveðið á um að sveitarfélög nýti skipulagsgerð til þess að skilgreina meginleiðir ferðamanna, gangandi, ríðandi og hjólandi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





