23. júlí 2026
24. júlí 2026
Margvísleg merki um hóflegan samdrátt í byggingariðnaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Starfandi í byggingariðnaði hefur fækkað en atvinnulausum hefur fjölgað
- Atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu undanfarin ár
- Nýskráningum fyrirtækja í byggingariðnaði hefur farið fækkandi þó þær séu enn fleiri en gjaldþrot í greininni
Greina má ýmis merki um samdrátt í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Að undanförnu hefur starfsfólki í greininni fækkað og atvinnuleysi aukist á sama tíma og nýskráningum í greininni hefur fækkað og gjaldþrotum hefur fjölgað. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir júlímánuð.
Mánaðarskýrsla HMS fyrir júlí 2026
Atvinnuleysi hefur aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu
Alls störfuðu rúmlega 19.000 manns í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð í maí síðastliðnum, samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Starfsfólki í greininni hefur fækkað um 2% á síðustu 12 mánuðum. Samkvæmt gögnum frá Vinnumálastofnun voru 1.167 atvinnulausir í byggingariðnaði í júní síðastliðnum, rúmlega þriðjungi fleiri en á sama tíma fyrir ári síðan.
Með því að skeyta saman gögnum frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun er hægt að áætla atvinnuleysi í greininni og í hagkerfinu í heild sinni frá árinu 2008. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan, en samkvæmt henni mælist atvinnuleysi í greininni nú um 6%, á meðan áætlað atvinnuleysi í hagkerfinu í heild sinni mælist um 4% samkvæmt þessari mæliaðferð.
Atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur aukist hraðar en atvinnuleysi annars staðar í hagkerfinu á síðustu fjórum árum. Líkt og myndin hér að ofan sýnir er atvinnuleysi í greininni það mesta sem mælst hefur frá árinu 2022, en er þó ekki nálægt því að vera jafnmikið og það var á tímum heimsfaraldursins árin 2020-2021 eða í kjölfar fjármálahrunsins árin 2009-2012.
Nýskráningar fyrirtækja í byggingariðnaði eru enn fleiri en gjaldþrot
Svipaða þróun má sjá í þróun skráðra fyrirtækja í greininni. Myndin hér að neðan sýnir fjölda nýskráninga og gjaldþrota í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð frá árinu 2008, eftir árshelmingum. Samkvæmt myndinni hefur nýskráningum fækkað og gjaldþrotum fjölgað frá árinu 2022.
Nýskráð fyrirtæki á fyrri helmingi þessa árs hafa ekki verið færri í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð frá árinu 2020 og gjaldþrot í greininni á nýliðnum árshelmingi hafa ekki verið fleiri frá árinu 2023. Hins vegar eru nýskráningar fyrirtækja enn margar í sögulegu samhengi og fleiri en gjaldþrot.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



