20. október 2026

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,06 prósent á milli mánaða í september 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,06 prósent á milli mánaða í september og er það mesta mánaðarhækkun frá janúar
  • Árstaktur vísitölunnar hefur haldist stöðugur nálægt 2 prósentum í hverjum mánuði frá áramótum
  • Stóru viðskiptabankarnir spá allir áframhaldandi raunlækkun íbúðaverðs árið 2027

Vísitala íbúðaverðs mældist 114,8 stig í september og hækkaði um 1,06 prósent frá fyrri mánuði. Þetta er mesta hækkun vísitölunnar á milli mánaða frá því í janúar, en hún hafði hækkað um 0,09 prósent þrjá mánuði í röð frá júní til ágúst.

Þrátt fyrir meiri hækkun í september hefur verðþróun verið hófleg þegar horft er yfir lengra tímabil. Vísitalan hefur hækkað um 1,23 prósent síðustu þrjá mánuði og 0,88 prósent síðustu sex mánuði.

Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs mælist nú 1,77 prósent, samanborið við 2,25 prósent í ágúst. Frá síðustu áramótum hefur tólf mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs verið stöðug og nálægt 2 prósentum.

Þar sem verðbólga mældist 5,9 prósent í september hefur íbúðaverð lækkað um tæplega 3,9 prósent að raunvirði á síðustu tólf mánuðum. Raunverð íbúða hefur þar með lækkað á ársgrundvelli í 14 mánuði samfellt.

Hækkun á höfuðborgarsvæðinu dró vísitöluna upp í september

Verðþróunin var ólík eftir landsvæðum í september. Á höfuðborgarsvæðinu hækkaði íbúðaverð um 1,42 prósent á milli mánaða. Þar hækkaði verð á sérbýli um 1,57 prósent og verð á fjölbýli um 1,36 prósent. Á landsbyggðinni stóð íbúðaverð hins vegar í stað á milli mánaða. Verð á sérbýli lækkaði um 0,60 prósent en verð á fjölbýli hækkaði um 1,45 prósent.

Verðþróunin var ólík eftir landsvæðum í september. Á höfuðborgarsvæðinu hækkaði íbúðaverð um 1,42 prósent á milli mánaða. Þar hækkaði verð á sérbýli um 1,57 prósent og verð á fjölbýli um 1,36 prósent. Á landsbyggðinni stóð íbúðaverð hins vegar í stað á milli mánaða. Verð á sérbýli lækkaði um 0,60 prósent en verð á fjölbýli hækkaði um 1,45 prósent.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir sept­em­ber 2026

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð114,81,06%1,77%
Sérbýli á hbs.116,61,57%1,92%
Sérbýli á landsbyggð116,3-0,60%0,69%
Fjölbýli á hbs.1121,36%2,10 %
Fjölbýli á landsbyggð119,31,45%2,32%

Bankarnir spá áframhaldandi raunverðslækkun

Nýjustu þjóðhagsspár stóru viðskiptabankanna þriggja gera allar ráð fyrir áframhaldandi lækkun raunverðs íbúða á þessu ári og árið 2027. Spárnar eru nokkuð samhljóma til skemmri tíma, þótt nokkur munur sé á umfangi lækkunarinnar. Arion banki spáir 2,9 prósenta lækkun raunverðs í ár og 3,1 prósenta lækkun árið 2027. Íslandsbanki gerir ráð fyrir 3,4 prósenta lækkun í ár og 1,6 prósenta lækkun árið 2027, en Landsbankinn 3,4 prósenta og 2,2 prósenta lækkun á sömu árum.

Meiri munur er á horfunum þegar lengra líður á spátímann. Íslandsbanki gerir ráð fyrir tiltölulega kröftugum viðsnúningi árið 2028, en Landsbankinn spáir hægari hækkun. Arion banki gerir hins vegar ráð fyrir lítils háttar raunverðslækkun áfram árið 2028 áður en verðþróun tekur við sér árið 2029.

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS