23. júlí 2026
Mánaðarskýrsla HMS júlí 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir júlí 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að leigumarkaðurinn hafi stækkað lítillega undanfarið samkvæmt nýrri búsetumælingu og að á byggingarmarkaði megi greina ýmis merki um hóflegan samdrátt.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Hlutdeild ódýrra íbúða af seldum íbúðum hefur farið vaxandi á höfuðborgarsvæðinu
Fasteignamarkaðurinn er áfram rólegur, kaupsamningar í maí voru færri en undanfarin ár og framboð íbúða til sölu hélt áfram að aukast á milli mánaða.
Tæplega sjö mánuði tæki að selja allt núverandi framboð af íbúðum á sölu á höfuðborgarsvæðinu ef miðað er við virkni síðustu þriggja mánaða og hefur sá tími lengst töluvert það sem af er ári. Fasteignasalar telja þó að jafnaði fleiri skoða eignir í fyrstu viku sölutíma í byrjun júlí samanborið við í byrjun júní.
Kaup á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hafa beinst í auknum mæli að ódýrari íbúðum á undanförnum fimm árum, samhliða versnandi íbúðalánakjörum og hertum lánþegaskilyrðum.
Hlutfall einstaklinga á leigumarkaði hækkar lítillega
Leigumarkaðurinn hefur stækkað lítillega undanfarið samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS, en hlutfall einstaklinga á leigumarkaði mældist 29% í vor samanborið við 28% síðastliðið haust. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að ungmennum í foreldrahúsum fækki og að ungmennum á leigumarkaði fjölgi.
Flest gögn benda til þess að hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hér á landi hafi að jafnaði verið á pari við það sem þekkist að meðaltali í löndum innan Evrópusambandsins. Hlutfallið hefur þó verið talsvert hærra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum þar sem það mælist að jafnaði lægst í alþjóðlegum samanburði.
Aukin ásókn í fasta íbúðalánavexti
Lánamarkaðurinn einkennist áfram af óverðtryggðri íbúðalántöku heimilanna hjá bönkunum en verðtryggðri lántöku hjá lífeyrissjóðunum. Undanfarin misseri hafa heimilin valið að festa vexti á íbúðalánum sínum í auknum mæli, en í apríl voru nær 95% allra nýrra fasteignalána á föstum vöxtum.
Skert framboð verðtryggðra lána á breytilegum vöxtum í kjölfar vaxtadómanna hefur þar óneitanlega áhrif, en væntingar heimilanna til áframhaldandi verðbólgu og stýrivaxtahækkanir á fyrri hluta ársins valda þar líklega mestu.
Margvísleg merki um hóflegan samdrátt í byggingariðnaði
Byggingarmarkaðurinn er farinn að sýna merki hóflegs samdráttar með færri nýskráningum fyrirtækja, fleiri gjaldþrotum og auknu atvinnuleysi. Áætla má að atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sé um 6% á meðan það mælist um 4% í hagkerfinu í heild.
Atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu á undanförnum árum en er þó ekki nálægt því að vera jafn mikið og það var á tímum heimsfaraldursins á árunum 2020 til 2021 eða í kjölfar fjármálahrunsins árin 2009 til 2012.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




