16. september 2026
17. september 2026
Mánaðarskýrsla HMS september 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir september 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að á kólnandi fasteignamarkaði hafi hlutdeild fyrstu kaupenda verið há, en þeir njóta gjarnan stuðnings frá foreldrum auk þess sem ásókn í hlutdeildarlán hefur verið mikil. Í skýrslunni er einnig fjallað um kólnun á byggingarmarkaði með fækkun starfsfólks og minni íbúðafjárfestingu. Betri upplýsingar fást um stöðu íbúðauppbyggingar þegar niðurstöður septembertalningar HMS á íbúðum í byggingu verða kynntar þriðjudaginn 22. september næstkomandi.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Eignir seljast oftar undir auglýstu verði eftir því sem sölutími lengist
Fasteignamarkaðurinn kólnar enn að mati fasteignasala og íbúðaverð hækkar áfram hóflega á milli mánaða. Hlutdeild fyrstu kaupenda hefur verið há undanfarna mánuði þótt kaupsamningar um fyrstu fasteignakaup hafi verið færri en að jafnaði undanfarin ár. Fyrstu kaupendur hafa í miklum mæli notið stuðnings frá foreldrum eða nánum ættingjum við fasteignakaup, auk þess sem ásókn í hlutdeildarlán hefur verið mikil undanfarna mánuði.
Í júlí síðastliðnum seldust fjórar af hverjum fimm íbúðum undir auglýstu söluverði, en hlutfallið hefur farið vaxandi undanfarin misseri. Líkur á að eign seljist undir auglýstu söluverði aukast eftir því sem eign hefur verið lengur á söluskrá, en yfir 85% eigna sem hafa verið lengur en eitt ár á sölu hafa selst undir auglýstu verði undanfarin tvö ár.
Stúdentaíbúðir setja svip sinn á leigumarkaðinn í ágúst
Leigumarkaðurinn litaðist af stúdentaíbúðum í ágúst, þar sem nýskráðum og endurnýjuðum leigusamningum á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga fjölgaði mikið. Meðalleiguverð lækkaði einnig talsvert á milli mánaða, sem skýrist af því að stúdentaíbúðir eru að jafnaði minni en aðrar leiguíbúðir og heildarleiguverð því lægra. Um er að ræða hefðbundna árstíðasveiflu á leigumarkaði í tengslum við upphaf nýs skólaárs.
Húsnæðislánavextir hækka í kjölfar stýrivaxtahækkunar
Lánamarkaðurinn hefur þegar skilað stýrivaxtahækkun Seðlabankans frá því í ágúst út í breytilega óverðtryggða húsnæðislánavexti þó minni breytingar hafi orðið á föstum óverðtryggðum vöxtum. Arion banki og Landsbankinn hafa einnig hækkað fasta verðtryggða vexti á íbúðalánum. Samkvæmt nýrri útlánakönnun Seðlabankans gera bankarnir ráð fyrir frekari hækkun íbúðalánavaxta á næstu sex mánuðum, einkum vegna væntinga um hærri stýrivexti og aukinn fjármögnunarkostnað.
Skýr merki um mótbyr á byggingarmarkaði
Byggingarmarkaðurinn ber áfram merki kólnunar með fækkun starfsfólks og minni íbúðafjárfestingu á milli ára. Velta í byggingu húsnæðis í maí og júní dróst lítillega saman að nafnvirði frá því á sama tíma í fyrra, en velta í mannvirkjagerð og sérhæfðri byggingarstarfsemi jókst aftur á móti talsvert á tímabilinu.
HMS hefur nú lokið septembertalningu á íbúðum í byggingu, en niðurstöður hennar verða kynntar á opnum fundi í húsakynnum HMS þriðjudaginn 22. september.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




