18. júní 2026

Góður undirbúningur er lykillinn að fyrstu fasteignakaupum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fyrstu kaupendur geta nýtt sér aukið svigrúm og tækifæri á kaupendamarkaði
  • Markviss sparnaður og góður fjárhagslegur undirbúningur eru mikilvæg fyrstu skref
  • Sjónskoðun á opnu húsi getur gefið mikilvægar vísbendingar um ástand eignar og mögulega viðhaldsþörf

HMS stóð fyrir opnum fundi um fyrstu skrefin á fasteignamarkaði síðastliðinn mánudag. Á fundinum var farið yfir helstu atriði sem fólk þarf að hafa í huga þegar það hyggst kaupa sína fyrstu fasteign, allt frá sparnaði og fjármögnun til fasteignaleitar og skoðunar á ástandi eignar.

Skoða má upptöku af fundinum hér að neðan, en þar komu fram Páll Pálsson, eigandi Pálsson fasteignasölu og Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi ásamt Jóni Erni Gunnarssyni og Gústafi Adolf Hermannssyni hjá HMS.

Viðburðurinn var ætlaður þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði eða vilja öðlast betri yfirsýn yfir kaupferlið. Fyrirlesarar miðluðu hagnýtum ráðum og reynslu úr ólíkum áttum og lögðu áherslu á að góður undirbúningur geti skipt sköpum við jafn stóra fjárhagslega ákvörðun og fasteignakaup.

Mörg tæki­færi í boði fyr­ir fyrstu kaup­end­ur

Björn Berg Gunnarsson fjallaði um hvernig hægt er að spara fyrir útborgun og mikilvægi þess að hefja undirbúning tímanlega. Jón Örn Gunnarsson, sem er hagfræðingur hjá HMS, fór yfir stöðu fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði. Þar kom meðal annars fram að fyrstu kaupendur gætu nýtt sér þau tækifæri sem kaupendamarkaður býður upp á, svo sem aukið svigrúm til að skoða eignir og semja um verð.

Páll Pálsson hvatti kaupendur til að vera opnir fyrir þeim tækifærum og möguleikum sem íbúðir geta haft. Eign sem uppfyllir ekki allar óskir við fyrstu sýn gæti með breytingum eða endurbótum hentað þörfum kaupanda vel.

Gústaf Adolf Hermannsson, sem er byggingareðlisfræðingur hjá HMS, gaf góð ráð um hvað kaupendur ættu að skoða þegar þeir mæta í opin hús, þar á meðal ástand eignarinnar og möguleg merki um viðhaldsþörf.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS