18. júní 2026
18. júní 2026
Flísaklæddir votrýmisveggir
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS hefur endurvakið útgáfu á Rb-blöðunum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaðanna hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tengslum við útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS, í lok hvers mánaðar, eldri blöð sem fjalla um málefni líðandi stundar.
Rb-blað mánaðarins fjallar um flísaklædda votrýmisveggi.
Rb-blað mánaðarins
Rb-blaðið Flísaklæddir votrýmisveggir var gefið út í júlí 2017 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Höfundur blaðsins er Jón Sigurjónsson.
Blaðið fjallar um flísalagða veggi votrýma. Lýst er frágangi sem gefur ásættanlegt raka- og lekaöryggi blautsvæða í votrýminu. Einnig er lýst fullnægjandi frágangi þeirra svæða í votrýmum sem minna mæðir á. Votrými eru skilgreind sem baðherbergi, þvottaherbergi og önnur votrými sem verða fyrir minna vatnsálagi í íbúðarhúsum, opinberum byggingum og gististöðum en ekki í stórum opinberum baðhúsum, sturtusvæðum sundlauga eða íþróttahúsa.
Blaðið fjallar eingöngu um flísalagða veggi votrýma og uppbyggingu þeirra.
Öll útgefin Rb-leiðbeiningarblöð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




