Framkvæmd kíttunar

Burðaribiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Framkvæmd kíttunar

- Burðaribiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð
Framkvæmd kíttunar

Burðaribiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Framkvæmd kíttunar

- Burðaribiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Yfirlit

Ábendingar/athugasemdir

Kítt­un

Kíttun er sú framkvæmd að þétta/fylla samskeyti (fúgur eða raufar) milli byggingarvara/byggingarhluta með kítti, þannig að lokað sé fyrir raka, loft og vatn. Markmiðið er að tryggja þéttleika og varnir byggingarinnar að hluta eða í heild.

Efni vefsíðunnar er ætlað að styðja við rétta verklega framkvæmd kíttunar. Lögð er áhersla á undirbúning, bakfyllingu, ísetningu, yfirborðsfrágang, vernd og gæðaeftirlit. Umfjöllunin kemur ekki í stað tækniblaðs, öryggisblaðs, verklýsingar eða viðurkenndrar kerfislausnar.

Kítti er heiti á fjölbreyttum hópi þéttiefna. Um er að ræða efni sem alla jafna fæst í túpum eða hylkjum og sprautað milli fúga eða raufa með verkfærum sem kallast kíttisbyssa eða kíttisgrind. Einnig er hægt að nota sérhannaða spaða til verksins, sbr. fúguspaða.

Gerður er greinarmunur á hugtökunum kíttun, fúgun og þétting.

  • Fúgun er það að fylla fúgu (bil/samskeyti) með fúgufylliefni eða fúgumassa til að loka henni og tryggja virkni eða frágang.
  • Þétting er yfirhugtak yfir allar þær aðgerðir þar sem efni er sett milli aðliggjandi eininga (byggingarvara/byggingarhluta) til hindra að vatrn eða loft komist í gegn. Þétting getur verið framkvæmd með kítti, þéttilista, fúgu o.fl.

Góð­ar regl­ur áður en haf­ist er handa

Góð kíttun byggist á réttu efnisvali, hreinu og traustu undirlagi, réttri fúguhönnun, viðeigandi vinnuaðstæðum og vönduðum vinnubrögðum. Algengir gallar tengjast oft ófullnægjandi undirbúningi, rangri bakfyllingu eða óheppilegri fúgulögun. Hafa skal eftirfarandi í huga:

  • Rétt efni: Þéttiefnið skal henta undirlagi, væntanlegri hreyfingu, raka- og veðurálagi, málun og sérkröfum verksins.
  • Rétt fúga: Fúgan skal hafa næga breidd og dýpt fyrir valið þéttiefni. Kítti er hluti af heildarfrágangi og kemur ekki í stað veðurvarna, blikkfrágangs eða annars frágangs sem leiðir vatn frá samskeytum.
  • Rétt undirlag: Viðloðunarfletir skulu vera fastir, hreinir, þurrir og samhæfir við þéttiefnið. Málning eða húðun þarf sjálf að loða vel.
  • Rétt hjálparefni: Hreinsiefni, grunnur, bakfylling og fúguborði skulu valin samkvæmt tækniblaði eða samþykktri kerfislausn.
  • Réttar aðstæður: Lofthiti, yfirborðshiti, raki, daggarmark, frost, úrkoma, vindur og sól skulu vera innan marka framleiðanda.
  • Prófun og rekjanleiki: Við óvissu skal gera prufu- eða viðloðunarprófun. Skrá skal efni, lotunúmer, staðsetningu og frávik þar sem sérstakar kröfur eiga við.

Athuga þarf að í hreyfifúgum (sem hreyfing/tog getur átt sér stað) á þéttiefnið almennt að loða við hliðar fúgunnar en ekki við botninn. Bakfylling eða fúguborði stýrir fúgudýpt og kemur í veg fyrir þríhliða viðloðun.

Und­ir­bún­ing­ur fúgu og und­ir­lags

Góður og vandaður undirbúningur skiptir miklu máli varðandi hvernig til tekst. Ekki er ráðlegt að hefja kíttun ef undirlag er rakt, frosið eða óhreint, ef dögg myndast á yfirborði, ef óvissa er um þéttiefni, grunn eða bakfyllingu, eða ef hitastig og veður eru utan marka tækniblaðs (þ.e. tæknilegrar lýsingar og notkunarleiðbeiningar framleiðanda).

  • Grunnur: Grunnur leysir ekki vandamál sem stafa af veiku, röku eða óhreinu undirlagi. Hann skal aðeins notaður á rétt undirbúna viðloðunarfleti samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
  • Ryk, laust efni eða sementslím: Fjarlægja með bursta, slípun, ryksugu eða annarri viðeigandi aðferð. Fúgubrúnir þurfa að vera fastar og heilar.
  • Steypa og múr: Fjarlægja sementslím, mótaolíu, laust yfirborð og mengun. Meta rakaástand og þörf fyrir grunn samkvæmt tækniblaði.
  • Málmur, gler og önnur þétt yfirborð: Hreinsa samkvæmt tækniblaði, oft með hreinsiefni sem framleiðandi mælir með og tveggja-klúta aðferð. Nota hreina klúta og láta hreinsiefni gufa upp ef framleiðandi krefst þess.
  • Málaðir fletir: Staðfesta að málning sé heil, hrein og vel föst. Ekki gera ráð fyrir að þéttiefni bæti viðloðun lauss málningarlags.
  • Gamalt kítti / endurkíttun: Fjarlægja gamalt, skemmt eða ósamhæft efni niður á fast undirlag. Hreinsa brúnir og endurmeta bakfyllingu, grunn og samhæfni.
  • Rakt, frosið eða döggvað undirlag: Ekki skal kítta nema tækniblað heimili það sérstaklega. Undirlag skal vera þurrt, frostlaust og án döggvar eða annarrar rakamyndunar.

Verk­færi og hjálp­ar­efni á vinnu­svæði

Á vinnusvæði þarf að hafa kíttibyssu, rétt skorinn stút, bakfyllingu eða fúguborða, hreinsiefni, hreina klúta, límband og sléttunarverkfæri eftir þörfum. Grunnur, persónuhlífar og vöruupplýsingar skulu vera tiltæk þar sem tækniblað, öryggisblað eða aðstæður krefjast þess.

Mynd: Þvermál bakfyllingar (pulsu) þarf að vera 20-30% stærri en breidd fúgu

Fúgu­form, dýpt og bak­fyll­ing

Rétt fúgulögun gerir þéttiefninu/kíttinu kleift að taka upp hreyfingar án þess að rifna eða losna. Breidd, dýpt og hreyfigeta eru háð vörunni og skulu fylgja tækniblaði og verklýsingu.

  • Bakfylling: Velja skal bakfyllingu sem hentar fúgubreidd, rakaálagi og þéttiefni. Lokuð PE-bakfylling er algeng í útifúgum, en valið skal alltaf samræmast tækniblaði, fúgugerð og aðstæðum.
  • Stærð bakfyllingar: Almennt skal bakfylling vera um 20-25% stærri en fúgubreidd svo hún sitji þétt og haldi réttri fúgudýpt.
  • Ísetning bakfyllingar: Setja bakfyllingu í með ávölu verkfæri. Ekki nota oddhvasst verkfæri sem getur skemmt bakfyllinguna og valdið loftbólum eða ójafnri fúgu.
  • Fúguborði: Nota má fúguborða þegar fúga er of grunn fyrir bakfyllingu eða þegar hindra þarf viðloðun við botn fúgunnar.
  • Fúgudýpt: Stilla skal fúgudýpt með bakfyllingu eða fúguborða. Í mörgum hreyfifúgum er dýpt minni en breidd; í breiðari fúgum er algengt viðmið um 1:2, en það er ekki algilt.
  • Hornfúga: Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda um snertiflöt, þykkt og lögun. Hornfúga er ekki hönnuð á sama hátt og hefðbundin hreyfifúga með tveggja hliða viðloðun.

Mynd: Algeng regla varðandi hlutfall dýptar kíttis í samhengi við breidd fúgu

Verk­ferli – átta skref að góðri kítt­un

Ljúka skal undirbúningi áður en þéttiefni er opnað. Þegar aðstæður stytta vinnslutíma skal vinna í stuttum köflum.

  1. Skoða og afmarka: Skoða fúgu, brúnir og aðliggjandi yfirborð. Setja límband þar sem þarf, en ekki yfir viðloðunarfleti.
  2. Hreinsa og þurrka: Fjarlægja ryk, fitu, laust efni, sementslím, gamla þéttingu og annað sem getur skert viðloðun. Nota hreinsiefni sem framleiðandi mælir með og hreina klúta.
  3. Grunna ef þarf: Bera grunn aðeins á viðloðunarfleti, í réttu magni og innan þess opna tíma sem framleiðandi gefur upp. Grunnur er ekki sjálfgefin krafa; hann er háður vöru og undirlagi.
  4. Setja bakfyllingu eða fúguborða: Stilla bakfyllingu í jafna dýpt án skemmda. Nota fúguborða þar sem bakfylling á ekki við. Í hreyfifúgu skal forðast þríhliða viðloðun.
  5. Undirbúa stút og efni: Staðfesta gildistíma og vinnsluhita. Skera stút skáhallt, oft um 45°, með opi sem hentar fúgubreidd. Prufa flæði áður en byrjað er.
  6. Fylla fúguna: Sprauta jafnt og samfellt þannig að þéttiefnið fylli fúguna og þrýstist að báðum hliðum. Forðast skal rof í efnisstreng, loftbólur og holrými. Halda skal stútnum við fúguna og vinna í jöfnum hraða. Fyllingin skal vera samfelld, án holrýma, og ná báðum viðloðunarfletum.
  7. Slétta og móta: Slétta skal strax, innan vinnslutíma og áður en húð myndast. Fúgan skal vera jöfn, samfelld og með góða snertingu við fúgubrúnir. Sléttun er hluti af frágangi og viðloðun, ekki aðeins útlitsatriði.
  8. Fjarlægja límband og verja: Fjarlægja límband áður en húð myndast, nema tækniblað segi annað. Verja fúguna gegn rigningu, ryki, frosti, snertingu og hreyfingu þar til nægileg hersla er náð.

Mynd: Holrými myndast gjarnan þegar fúgufylliefni er sprautað í fúgur, með því að slétta úr fúgum með þar til gerðum verkfærum er fylliefninu þrýst í holrými svo það nái fullri snertingu við límfleti og útlit verði samhverft

Mynd: Ef fúga er breið gæti þurfa að fylla hana í þremur lögum (umferðum)

Slétt­un, hersla og vernd

Sléttun þrýstir þéttiefninu að fúgubrúnunum, mótar yfirborðið og hjálpar til við að losa loft úr fúgunni. Sléttun skal fara fram áður en húð myndast á efninu.

Nota skal viðeigandi sléttunarverkfæri og aðeins þau hjálparefni sem framleiðandi kíttis heimilar. Forðast skal sápuvatn, leysiefni eða önnur efni sem geta truflað herslu eða dregið úr viðloðun. Við sól, vind, kulda eða hita skal vinna í stuttum köflum.

Verja skal nýja fúgu þar til framleiðandi heimilar frekari meðhöndlun.

Mynd: Notkun bakfyllingar í botn fúgu, hindrar þríhliða viðloðun kíttis sem þá límist eingöngu við fúguhliðar eins og til er ætlast, en ekki botninn. Án bakfyllingar í fúgubotni, aukast verulega líkur á því að þétting rifni við álag.

Mynd: Algengt dæmi um fúgu í kverk á milli byggingarhluta sem eru á hreyfingu. Á myndinni má sjá hvernig teygist eðlilega á kíttinu þegar notuð er bakfylling. Þar sem engin er bakfyllingin skerðist hæfni kíttisins til að teygjast með þeim afleiðingum að það rifnar.

Gæða­eft­ir­lit á verk­stað

Mikilvægt er að tryggja að þéttiefnið/kíttið henti til verksins, að undirlag þéttiefnis sé tilbúið og að vinnubrögð séu góð. Til að tryggja gæði verksins er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:

  • Áður en kíttað er: Rétt þéttiefni, lotunúmer og gildistími. Tækniblað og öryggisblað til staðar. Réttur grunnur og bakfylling. Undirlag hreint, þurrt og traust. Fúguhönnun og aðstæður innan marka.
  • Meðan unnið er: Jöfn dýpt bakfyllingar. Engin þríhliða viðloðun. Samfelld fylling, full fúga og sléttun innan vinnslutíma.
  • Strax eftir frágang: Samfelld fúga með góðri snertingu við báðar brúnir. Rétt lögun og jafnt yfirborð. Engar rifur, holur, loftbólur eða mengun í yfirborði.
  • Eftir herslu: Engin losun frá brúnum, sig, sprungur, bólur, klístur eða önnur frávik umfram það sem tækniblað lýsir sem eðlilegu fyrir vöruna.

Al­geng mis­tök – af­leið­ing og for­vörn

Auðvelt er að gera mistök við kíttun. Margt getur farið úrskeiðis og oft er um keðjuverkun að ræða. Sem dæmi getur notkun á röngu kítti orðið til þess að frágangur við brúnir og yfirborð verður óvandaður.

Helstu mistök og rétt framkvæmd eru:

  • Óhreint, rakt eða veikt undirlag: Viðloðun veikist; hætta á losi og leka. Rétt framkvæmd: Hreinsa, þurrka og staðfesta burðarhæfni. Gera prufu ef óvissa er.
  • Engin bakfylling eða fúguborði: Fúgan getur ekki hreyfst eðlilega (þríhliða viðloðun). Hætta á sprungum og skertri þéttingu. Rétt framkvæmd: Nota rétta bakfyllingu eða fúguborða og stilla rétta fúgudýpt.
  • Of djúp eða of mjó fúga: Skert hreyfigeta, rifur eða styttri ending. Rétt framkvæmd: Fylgja tækniblaði um breidd, dýpt og fúguhönnun.
  • Röng sléttun eða óviðeigandi hjálparefni: Yfirborðsskemmdir, mengun eða skert viðloðun. Rétt framkvæmd: Nota viðeigandi sléttunarverkfæri og aðeins þau hjálparefni sem framleiðandi heimilar.
  • Kíttað við rangar aðstæður eða fúga tekin of fljótt í notkun: Léleg viðloðun, ófullnægjandi hersla, sprungur, klístur eða vatnsskemmdir. Rétt framkvæmd: Verja fúguna, bíða réttra aðstæðna og fylgja leiðbeiningum um málun, herslutíma og leyfilegt álag.

Mynd: Röng og rétt aðferð við fyllingu fúgu með kíttissprautu

Sértil­vik – hvenær þarf sér­lausn?

Kítti er aðeins einn hluti af heildarfrágangi og má ekki eitt og sér koma í stað veðurvarna, blikkfrágangs, loftþéttilags, rakavarnar eða hannaðs tveggja þrepa þéttikerfis.

Í eftirfarandi tilvikum þarf að fylgja hönnunargögnum, samþykktri kerfislausn og sérleiðbeiningum framleiðanda:

  • Brunafúgur, reykþéttingar og hljóðfúgur.
  • Votrými, glerjun, þakfúgur, göngusvæði og láréttar fúgur með vatnsálagi.
  • Gluggar, hurðir og önnur op í útvegg þar sem kítti er aðeins einn hluti af heildarfrágangi með tróði, þéttiborðum, dúkum, listum, blikkfrágangi og afrennsli.
  • Samskeyti með mikla vænta hreyfingu, stórar fúgur, náttúrustein, viðkvæm yfirborð, málningu eða óþekkt plast.
  • Tveggja-þátta efni, sérhæfð lím- og þéttiefni eða kerfi með sérstakar kröfur um prófun, blöndun, hitastig eða herslu.

Við­hald, end­ur­kítt­un og við­gerð­ir

Skoða skal útsettar fúgur reglulega. Merki um galla geta verið los frá brúnum, rifur, loftbólur, sig, hörðnun, klístur, mislitun eða leki.

Við endurkíttun skal fjarlægja laust, skemmt eða ósamhæft efni, hreinsa viðloðunarfleti og endurgera fúguna með réttri bakfyllingu og lögun. Ekki skal setja nýtt kítti yfir gamalt ef óvissa er um viðloðun, samhæfni eða ástand eldra efnis.

Tafla: Yfirlit yfir framkvæmdarferli kíttunar

Frá­gang­ur á verk­stað

Frágangur á verkstað er ekki síður mikilvægur en vinna við verkið sjálft. Frágangur á verkstað á ekki eingöngu að miðast við lok verks. Sem dæmi er góð vinnuregla að við lok vinnudags sé hugað að frágangi, verkfærum, byggingarefnum og öryggi vinnustaðar.

  • Eftir verk skal ávallt ganga þannig frá að verkstaður sé hreinn, skipulagður og öruggur, og að flóttaleiðir séu opnar. Aðgengi að slökkvibúnaði og útgönguleiðum má aldrei hindra.
  • Flokka þarf úrgang og fjarlægja reglulega. Ekki má safna upp úrgangi sem veldur hættu eða eykur brunahættu.
  • Verkfæri skulu þrifin og yfirfarin þannig að þau séu tilbúin til áframhaldandi notkunar.
  • Verkfæri (og annar búnaður) skulu vera í geymslu þegar þau eru ekki í notkun. Rafmagnssnúrur og slöngur skulu festar eða lagðar þannig að þær valdi ekki fallhættu.
  • Byggingarefni (t.d. afgangar) skulu geymd á skilgreindum svæðum og staflað á öruggan hátt. Hættuleg efni skulu meðhöndluð og geymd samkvæmt gildandi reglum.
  • Tryggja skal að skarpar brúnir, op og aðrir hættustaðir valdi ekki slysahættu og séu varðir eftir þörfum.
  • Halda skal gönguleiðum, vinnusvæðum og aðkomum fríum fyrir hindrunum á öllum tímum.
  • Frágangur verkstaðar skal vera hluti af daglegu eftirliti og verkstjórn, og allir sem starfa á verkstað bera ábyrgð á að viðhalda góðu skipulagi og öryggi.

Heim­ild­ir og mynd­ir

Fyrir tiltekið verk gilda alltaf tækniblað, öryggisblað, verklýsing og samþykkt kerfislausn. Uppgefnar heimildir koma ekki í stað sértækra vöruleiðbeininga.