Aðhlúun steinsteypu

Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Aðhlúun steinsteypu

- Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð
Aðhlúun steinsteypu

Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Aðhlúun steinsteypu

- Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Yfirlit

Ábendingar/athugasemdir

Hvað er að­hlú­un og af hverju skipt­ir hún máli?

Aðhlúun steinsteypu felur í sér ráðstafanir til að viðhalda réttum raka og hæfilegu hitastigi á fyrstu stigum hörðnunar steypunnar.

Markmiðið er að stuðla að fullnægjandi styrkþróun, góðum yfirborðsgæðum og viðeigandi endingu steypunnar.

Í raun þornar steypa ekki. Hún harðnar vegna efnahvarfa (þ.e. þegar efni breytast í önnur efni) milli sements og vatns. Við efnahvarfið losnar varmi og í stærri verkefnum getur innri hiti í steypunni orðið mjög hár. Þar með er hætta á að umframvatn gufi hratt upp.

Sé aðhlúun röng getur t.d. hraði uppgufunar verið of mikill, meðal afleiðinga er að steypan nær ekki fullum styrk.

Þess ber að geta að öll um fjöllun á þessari vefsíðu er leiðbeinandi. Kröfur í verklýsingum, hönnunargögnun, gildandi stöðlum og leiðbeiningum framleiðanda ganga ávallt framar þeim almennu viðmiðum sem hér eru sett fram.

Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir steypu­dag

Áður en steypt er skal aðhlúunaráætlun liggja fyrir og ábyrgð þeirra sem koma að verkinu vera skýr. Í henni skulu koma fram aðferð, ábyrgð, tiltæk efni og viðbrögð við breyttum veðuraðstæðum.

Skilgreina skal ábyrgðaraðila aðhlúunar á verkstað hverju sinni. Hlutverk hans er að fylgjast framkvæmdinni, veðri og bregðast við frávikum.

Hvenær á hefja að­hlú­un?

Aðhlúun skal hefjast um leið og yfirborðsfrágangi er lokið og yfirborðið þolir vernd. Við heitar, þurrar eða vindasamar aðstæður þarf að bregðast sérstaklega snemma við. Í frosti þurfa einangrunarmottur eða annað sambærilegt að vera tiltækar strax og yfirborð steypunnar þolir. Ef ekki er unnt að koma endanlegri vernd fyrir tafarlaust má beita tímabundnum úrræðum þar til samfelld aðhlúun hefur verið tryggð.

Mynd: Dæmi um einangrunarmottu

Það sem þarf að tryggja strax

  • Hefja vernd strax eftir frágang þegar yfirborð þolir.
  • Halda raka og lágmarka uppgufun (nota plast, raka dúka, steypuþekju eða úðun eftir aðstæðum).
  • Stjórna hitastigi og verja steypuna gegn kulda/frosti og skyndilegum hitabreytingum.
  • Halda vernd samfelldri og passa kanta og útstæða fleti.

Mynd: Steypt plata varin með steypuþekju

Velja þarf að­ferð eft­ir veðri og að­stæð­um

Veðuraðstæður hafa veruleg áhrif á val aðhlúunaraðferðar. Taflan hér á eftir er hugsuð sem viðmið, en endanlegt val skal ávallt tekið með hliðsjón af verklýsingu og raunverulegum aðstæðum á verkstað.

Helstu að­ferð­ir við að­hlú­un

Mynd: Steypt plata bleytt með vatni

Að­hlú­un á plöt­um

Plötur eru sérstaklega viðkvæmar vegna stórs berskjaldaðs yfirborðs. Við aðstæður þar sem vindur, sól eða þurrt loft eru til staðar getur uppgufun orðið hröð og ójöfn. Því þarf að grípa snemma til samfelldrar verndar.

  • Hefja vernd snemma (plötur geta þorna hratt).
  • Velja þarf aðferð eftir aðstæðum: plast, rakir dúkar, steypuþekja eða fíngerð úðun.
  • Gæta þarf sérstaklega að köntum og samskeytum og forðast hlé á vernd.

Mynd: Steypt plata varin með plastyfirbreiðslu

Að­hlú­un í kulda og frost­hættu

Við kulda og frosthættu þarf að tryggja að steypan frjósi ekki og að hitastigsbreytingar verði ekki of hraðar á fyrstu stigum hörðnunar. Þegar lofthiti er nálægt frostmarki eða meðalhiti er um eða undir +5 °C í nokkra daga þarf sérstaka áætlun um hitavernd, mælingar og aðhlúun.

  • Tryggja þarf að steypan frjósi ekki áður en hún hefur náð nægilegum byrjunarstyrk. Miðað er við að steypa teljist frostþolin við um 5 MPa þrýstiþol, nema verklýsing segi annað. MPa stendur fyrir megapaskal. Um er að ræða mælieiningu fyrir þrýsting eða spennu. 5 MPa merkir að steypa þolir tiltölega lítinn til miðlungs þunga áður en hún gefur sig.
  • Nota ber einangrun/hitavernd og skjól til að halda hitastigi og draga úr varmatapi.
  • Ekki á að steypa á frosið undirlag og fjarlægja hitavernd smám saman.

Nota þarf hitamælingar í steypu eða umhverfi þegar kulda- eða frosthætta er til staðar snjallmælar mæla líka styrkmyndun sem er hentugt fyrir tímasetningu frásláttar.

Mynd: Steypt plata varin með einangrun

Hversu lengi þarf að sinna að­hlú­un?

Við venjulegar aðstæður er oft miðað við nokkra daga aðhlúun, gjarnan um 3–7 daga fyrir hefðbundna steypu. Lengd aðhlúunar skal þó ávallt ákveða samkvæmt verklýsingu, steypugerð og aðstæðum á verkstað.

Aðhlúun skal ekki ljúka fyrr en steypan hefur náð nægilegum byrjunarstyrk samkvæmt verklýsingu eða mati ábyrgðaraðila.

Steypa með lægra sem­ents­magni

Steypublöndur með lægra sementsmagni eða hærra hlutfalli íblöndunarefna geta haft hægari styrkþróun fyrstu dagana, sérstaklega í kulda. Þá getur þurft lengri aðhlúun samkvæmt verklýsingu og mati á aðstæðum.

Eft­ir­lit og skrán­ing

Einföld skráning auðveldar gæðastjórnun og eftirfylgni. Að lágmarki ætti að skrá:

  • Veður og hitastig við niðurlögn og fyrstu daga.
  • Aðferð, upphafstíma og hvort vernd hafi haldist samfelld.
  • Frávik og sérstakar ráðstafanir, til dæmis vegna frosts, vinds eða rigningar.

Algeng mistök og afleiðingar

í lok­in

Tímanleg og samfelld aðhlúun dregur úr sprunguhættu og stuðlar að fullnægjandi styrkþróun, betri yfirborðsgæðum og aukinni endingu steypunnar. Vönduð vinnubrögð eru lykillinn að árangri.

Heim­ild­ir og mynd­ir