18. ágúst 2026
19. ágúst 2026
Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,46 prósent í júlí 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði á milli mánaða í júlí
- Vísitalan hefur að mestu haldið í við almenna verðlagsþróun síðustu mánuði
- Samkvæmt leiguverðsjá HMS hefur markaðsleiguverð hækkað mest á landsbyggðinni undanfarið
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 130,4 stig í júlí og hækkaði um 0,46 prósent á milli mánaða. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 4,74 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,3 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,61 prósent.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo júlí gildi hennar tekur mið af leigusamningum í júní og júlí.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur áfram í stað að raunvirði
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað talsvert umfram íbúðaverð að undanförnu, en hefur nokkurn veginn staðið í stað að raunvirði. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur tólf mánaða raunbreyting vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sveiflast á milli þess að vera lítillega jákvæð og lítillega neikvæð undanfarna 8 mánuði. Þar áður hafði tólf mánaða takturinn verið jákvæður um rúmlega tveggja ára skeið.
Markaðsleiga hefur hækkað mest á landsbyggðinni undanfarið ár
Vísitala leiguverðs tekur eingöngu til markaðsleigusamninga um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðsjá HMS inniheldur aftur á móti upplýsingar um meðalleiguverð um allt land. Miðað við upplýsingar úr leiguverðsjánni hefur meðalfermetraverð í markaðsleigusamningum hækkað um 6,1% á höfuðborgarsvæðinu undanfarna tólf mánuði.
Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var meðalfermetraverðið aftur á móti um 3 prósent lægra í nýliðnum júlímánuði samanborið við júlí í fyrra en annars staðar á landsbyggðinni hafði það hækkað um 7,8 prósent á tímabilinu.
Nýr póstlisti hagdeildar HMS
Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Póstlisti hagdeildar HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




