13. nóvember 2026
HMS áætlar að allt að 48 þúsund heimili séu á leigumarkaði í ár
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS hefur endurmetið áætlaðan fjölda heimila á leigumarkaði hér á landi og telur nú að þau séu allt að 48 þúsund
- Fækkun áætlaðra heimila á leigumarkaði milli ára stafar meðal annars af stærri meðalheimilisstærð
- Mat HMS byggir á niðurstöðum úr búsetukönnun og leigumarkaðskönnun auk upplýsinga um mannfjölda eftir kyni og aldri samkvæmt Hagstofu Íslands
Áætlaður fjöldi heimila á leigumarkaði nemur allt að 48 þúsundum í ár, samkvæmt uppfærðu mati HMS á stærð leigumarkaðar. Nánar verður fjallað um matið í næstu mánaðarskýrslu stofnunarinnar sem kemur út þann 19. nóvember.
Það var mat HMS að allt að 50 þúsund heimili væru á leigumarkaði hér á landi í fyrra, líkt og fjallað var um í frétt á vef stofnunarinnar síðastliðið haust. HMS hefur nú endurmetið stærð leigumarkaðar en samkvæmt uppfærðu mati eru heimilin litlu færri en áður var talið.
Hlutfall fullorðinna einstaklinga sem eru á leigumarkaði hækkaði lítillega á milli ára, úr 28% í 29%, samkvæmt búsetukönnun HMS. Þrátt fyrir það telur HMS að færri heimili séu á leigumarkaði í ár heldur en í fyrra. Það skýrist einna helst af því að meðalheimilisstærð á leigumarkaði mældist 2,2 í leigumarkaðskönnuninni í ár samanborið við 2,1 í fyrra. Þá benda niðurstöður búsetukannana til þess að um 20% barna búi í leiguhúsnæði í ár, samanborið við 23% í fyrra. Heilt á litið má því gera ráð fyrir að um 106 þúsund manns búi í leiguhúsnæði hér á landi, og þar af leiðandi að um 48 þúsund heimili séu á leigumarkaði.
Áætlaður fjöldi íbúa sem eru á leigumarkaði er fundinn með því að heimfæra niðurstöður úr leigumarkaðskönnun, eftir kyni og aldri, yfir á fólksfjölda hér á landi eftir sömu flokkun samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Þar sem leigumarkaðskönnunin nær einungis til íbúa sem eru 18 ára og eldri þarf að áætla hvernig börn 17 ára og yngri dreifast eftir búsetuformi.
Til þess er stuðst við niðurstöður úr búsetukönnun HMS þar sem þátttakendur eru spurðir hversu mörg börn hafa búsetu á heimili þeirra. Niðurstöður þeirrar spurningar eru greindar eftir búsetuformi þátttakenda og nýttar til að áætla dreifingu barna niður á búsetuform. Dreifingin er svo nýtt til að áætla hvernig heildarfjöldi barna 17 ára og yngri dreifist eftir búsetuformi foreldris eða forráðamanns.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




