18. ágúst 2026

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða í júlí 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða annan mánuðinn í röð
  • Raunverðslækkun íbúðaverðs á ársgrundvelli mælist nú 3,46 prósent
  • Íbúðaverð er nú álíka hátt að raunvirði og í nóvember 2023

Vísitala íbúðaverðs mældist 113,5 stig í júlí og hækkaði því um 0,09 prósent á milli mánaða, annan mánuðinn í röð. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,61 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent. Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.

Íbúðaverð hækkaði um 0,63 prósent á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sérbýli hækkaði um 0,79 prósent og fjölbýli hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða. Á sama tíma lækkaði íbúðaverð á landsbyggðinni um 1,19 prósent á milli mánaða, þar sem sérbýli lækkaði um 1,18 prósent og fjölbýli um 1,21 prósent. Þess má geta að í júní var verðþróun öfug, þ.e. íbúðaverð lækkaði á höfuðborgarsvæðinu en hækkaði á landsbyggðinni, en vísitölurnar eiga það til að sveiflast nokkuð til á milli mánaða.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir júlí 2026

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð113,50,09%1,61%
Sérbýli á hbs.115,00,79%2,86%
Sérbýli á landsbyggð117,0-1,18%1,47%
Fjölbýli á hbs.110,70,45%1,0 %
Fjölbýli á landsbyggð114,4-1,21%1,15%

Raun­virði íbúða­verðs er álíka hátt og í nóv­em­ber 2023

Vísitala íbúðaverðs hefur farið lækkandi að raunvirði frá því í ársbyrjun 2025. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan lækkað um 3,46 prósent að raunvirði en tólf mánaða rauntakturinn hefur nú mælst neikvæður tólf mánuði í röð og er enn á niðurleið. Raunvirði íbúðaverðs mælist nú álíka hátt og í nóvember 2023, þegar það hafði hægt verulega á íbúðaverðshækkunum samhliða skörpum stýrivaxtahækkunum.

Undirvísitalan fyrir fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað minnst af öllum undirvísitölum íbúðaverðs á undanförnum 12 mánuðum, eða um 1% að nafnvirði sem samsvarar um 4% raunverðslækkun. Raunverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu mælist nú álíka hátt og haustið 2021.

Mestar hækkanir hafa aftur á móti orðið á undirvísitölunni fyrir sérbýli á höfuðborgarsvæðinu síðastliðið ár. Vísitalan hefur hækkað um 2,9% að nafnvirði sem samsvarar 2,3% raunverðslækkun. Raunverð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu mælist nú álíka hátt og í maí árið 2024. Undirvísitölur íbúðaverðs með grunn í júlí 2026 má sjá á myndinni hér að neðan.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS