11. nóvember 2026
Enn hækkar hlutfall íbúða sem selst undir auglýstu söluverði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Um helmingur nýrra íbúða og 85 prósent eldri íbúða hafa selst undir auglýstu söluverði að undanförnu
- Aðeins 5 til 7 prósent íbúða hafa selst yfir auglýstu söluverði á síðustu mánuðum
- Fasteignasalar segja áfram mjög algengt að verð sé lækkað í söluferli fasteigna
Sala íbúða undir auglýstu söluverði hefur orðið algengari að undanförnu og er nú áþekk því sem var árið 2019, áður en mikið líf færðist í markaðinn vegna vaxtalækkana. Talsvert algengara er að eldri íbúðir séu seldar undir auglýstu söluverði heldur en nýjar, en samt sem áður hefur um helmingur nýrra íbúða verið seldur undir auglýstu söluverði undanfarna mánuði. Þetta er meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir nóvembermánuð sem gefin verður út fimmtudaginn 19. nóvember.
Hlutfall eldri íbúða sem selst undir auglýstu söluverði mælist nú hærra en árið 2019
Á sama tíma og hægt hefur á verðhækkunum á íbúðamarkaði hafa hlutfallslega fleiri íbúðir selst undir auglýstu söluverði. Á síðustu þremur mánuðum hafa að meðaltali tæplega 85 prósent eldri íbúða selst undir auglýstu verði, samanborið við um 75 prósent um síðustu áramót og um 63 prósent á haustmánuðum ársins 2024, þegar Grindavíkuráhrifin stóðu hvað hæst.
Á myndinni hér að neðan má sjá þriggja mánaða meðaltal af dreifingu kaupverðs eldri íbúða á höfuðborgarsvæðinu í samanburði við auglýst söluverð þeirra.
Hlutfall eldri íbúða sem selst undir auglýstu söluverði mælist nú litlu hærra en það gerði á árinu 2019, þegar það var að jafnaði um 81 prósent. Frá og með árinu 2020 lækkaði hlutfallið aftur á móti hratt, á sama tíma og kraftur færðist í verðhækkanir á markaðnum samhliða lækkandi vaxtastigi.
Önnur hver ný íbúð selst undir auglýstu söluverði
Sjaldgæfara er að nýjar íbúðir seljist undir auglýstu verði, en engu að síður hefur um það bil helmingur nýrra íbúða selst undir auglýstu söluverði undanfarna mánuði. Eins og meðal annarra íbúða hefur hlutfallið farið vaxandi frá miðju ári 2024.
Meiri sveiflur eru í hlutfallinu á milli mánaða meðal nýrra íbúða en annarra íbúða þar sem kaupsamningar um nýjar íbúðir eru talsvert færri en um aðrar íbúðir og hver kaupsamningur vegur því þyngra sem hlutfall af heildinni. Á myndinni hér að neðan má sjá þriggja mánaða meðaltal af dreifingu kaupverðs í samanburði við auglýst söluverð nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu.
Sjö af hverjum tíu fasteignasölum telja algengt að verð íbúða sé lækkaði söluferli
Flestir fasteignasalar segja verð oft eða alltaf lækka í söluferli fasteigna. Það getur til að mynda falið í sér lækkun á auglýstu söluverði eða samþykki á kaupverði sem er lægra en auglýst söluverð. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur algengi verðlækkana færst í aukana frá miðju ári 2025, þegar HMS hóf að kanna álit fasteignasala með þessum hætti, sem rímar vel við þróun hlutfalls íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði.
Undanfarna mánuði hafa um 70 prósent fasteignasala talið að verð sé oft eða alltaf lækkað í söluferli á meðan einungis um 4 prósent segja það sjaldan eða aldrei lækkað. Um fjórðungur fasteignasala segir verð stundum lækkaði í söluferli.
Nóvemberkönnun HMS meðal fasteignasala var sú 19. af sinni gerð. Könnunin var lögð fyrir um 330 félagsmenn í Félagi fasteignasala og að þessu sinni bárust 90 svör. Svarhlutfallið var því rúmlega 27%.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




