26. júní 2026
29. júní 2026
Viltu fylgjast með endurskoðun byggingarreglugerðar?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS mun á næstu mánuðum vera í opnu samráði vegna fyrirhugaðra breytinga á byggingarreglugerð
- Áhugasamir geta skráð sig á póstlistann til þess að fá upplýsingar um komandi kynningar- og samráðsfundi
- Fyrsti samráðsfundurinn verður haldinn á fimmtudaginn 2. júlí og mun hann fjalla um hluta byggingarreglugerðarinnar sem snúa að innivist
Allar fréttir sem tengjast samráðsferli vegna nýrrar byggingarreglugerðar verða birtar á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig á póstlistann munu fá upplýsingar um komandi kynningar- og samráðsfundi, birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum, auk annars efnis sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráðu þig á póstlistann með því að ýta á hnappinn hér að neðan.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
HMS kynnti í síðustu viku tillögur sínar að nýrri byggingarreglugerð. Markmiðið með tillögunum er að gera byggingarreglugerðina einfaldari og skýrari, með samræmdri uppbyggingu sem veitir aukið svigrúm til nýsköpunar og fjölbreyttra lausna.
Opið samráð á næstu mánuðum
Ný byggingarreglugerð er liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, stuðla að skilvirkari stjórnsýslu og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissari og áhættumiðaðri nálgun í byggingareftirliti.
Á næstu mánuðum munu einstakir hlutar byggingarreglugerðar fara í opið samráð hjá HMS. Drög að hverjum kafla í nýrri reglugerð verða birt á vef ásamt greinargerð um breytingarnar, auk þess sem HMS mun halda opna fundi þar sem drögin eru kynnt og boðið verður upp á samtal. Hagaðilum verður í kjölfarið gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum og spurningum.
Fyrsti kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 2. júlí næstkomandi í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14, en hann fjallar um fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða innivist. Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér, en hægt verður að skrá sig á fundinn eða fylgjast með honum í beinu streymi.
Tímalína verkefnisins:
*Áætlunin getur tekið breytingum eftir framvindu verkefnisins og niðurstöðum samráðs.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




