9. mars 2026

Úthlutun hlutdeildarlána í mars 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var þrefalt meiri en framboðið  
  • Heildarfjárhæð samþykktra umsókna nam um 516 milljónum króna 
  • Þriðjungur úthlutaðra hlutdeildarlána fór til eigna utan höfuðborgarsvæðisins 

HMS hefur lokið yfirferð umsókna um hlutdeildarlán sem bárust stofnuninni í mars. Alls voru 92 umsóknir teknar til yfirferðar og var mikill meirihluti þeirra, eða 87 umsóknir, frá umsækjendum sem höfðu þegar fengið samþykkt kauptilboð í fasteign áður en sótt var um hlutdeildarlán. 

Mik­il um­fram­eft­ir­spurn kall­aði á hlut­kesti

Í mars voru að lágmarki 458 milljónir króna til úthlutunar en samanlögð umsótt lánsfjárhæð nam rúmlega 1.550 milljónum króna. Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var því verulega umfram það fjármagn sem stóð til boða. Af þeim sökum þurfti að varpa hlutkesti á milli umsókna sem uppfylltu öll skilyrði til að skera úr um hvaða umsóknir fengju úthlutun. 

Umsækjendur með samþykkt kauptilboð njóta forgangs að hlutdeildarlánum umfram þá sem ekki hafa fengið slíkt tilboð. Þá er jafnframt miðað við að HMS úthluti að minnsta kosti 20% hlutdeildarlána til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. 

Alls voru 34 umsóknir dregnar út af fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 516 milljónum króna. Samtals hlutu 19 umsóknir því ekki úthlutun í mars þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði.  

Í öllum tilfellum var umsækjendum boðið að halda umsókn opinni og færa hana yfir í úthlutun aprílmánaðar sem opnar í dag (9. apríl). 

Yfir helmingur samþykktra lána var vegna íbúðakaupa í Reykjavík en um þriðjungur fór til kaupa utan höfuðborgarsvæðisins. Líkt og í fyrri úthlutunum ársins voru fleiri lán veitt einstaklingum en hjónum og sambúðarfólki. 

Fjölda og fjárhæðir veittra hlutdeildarlána í mars má sjá í töflu fyrir neðan: 

Opn­að fyr­ir um­sókn­ir vegna út­hlut­un­ar í apr­íl

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán vegna úthlutunar í apríl og mun umsóknartímabilið standa til kl. 12:00 þann 20. apríl. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða að lágmarki 458 milljónir króna.   

Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS