20. nóvember 2026

Fjölbreytt styrktækifæri fyrir rannsóknir og nýsköpun í mannvirkjageiranum

Ljósmynd: Eyþór
Ljósmynd: Eyþór

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Burður og Rannís kynntu styrktækifæri fyrir rannsóknir og nýsköpun í mannvirkjageiranum
  • Kynntar voru áherslur Asks og umsóknarfrestur til 26. nóvember
  • Þátttakendur fengu ráðgjöf um styrkleiðir og fjármögnun verkefna

Burður og Rannís stóðu fyrir sameiginlegum viðburði mánudaginn 16. nóvember um styrkjaumhverfi mannvirkjageirans. Markmiðið var að gefa þátttakendum betri yfirsýn yfir innlend og evrópsk styrktækifæri og auðvelda þeim að finna rétta farveginn fyrir rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni.

Ask­ur mann­virkja­rann­sókn­ar­sjóð­ur

Á viðburðinum var farið yfir Ask mannvirkjarannsóknarsjóð og þau tækifæri sem sjóðurinn býður uppá fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun í mannvirkjageiranum. Jafnframt var fjallað um yfirstandandi umsóknarferli, áherslur sjóðsins og þau atriði sem umsækjendur þurfa að hafa í huga við gerð umsókna.

Háskólasamfélagið, rannsókna- og nýsköpunargeirinn, opinberir aðilar og atvinnulífið eru hvött til samstarfs um metnaðarfull verkefni sem leiða til hagnýtra lausna, bæta ákvarðanatöku og auka skilvirkni með nýsköpun og tækni. Áhersla er lögð á að niðurstöður séu hagnýtar og skili ávinningi fyrir mannvirkjagerð á Íslandi og samfélagið í heild. Við úthlutun árið 2026 verða þrír sérstakir áhersluflokkar: viðhald og endurbætur, byggingarvörur, byggingarhlutar og byggingaraðferðir, og sjálfbærni. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2026.

Umsóknarvefur Asks

Nánari upplýsingar um Ask og umsóknarferlið

Hand­bók um end­ur­notk­un

Á viðburðinum var verkefnið Handbók um endurnotkun kynnt, sem hlaut styrk úr Aski árið 2024. Verkefnið fjallar um hvernig hægt er að endurnota algeng byggingarefni og byggingarvörur á Íslandi. Þar er meðal annars horft til möguleika á endurnotkun, lagalegra hindrana, upplýsinga sem þurfa að liggja fyrir um byggingarefni og þeirrar áhættu sem þarf að hafa í huga.

Nánari upplýsingar um verkefnið: Handbók um endurnotkun

Inn­lend og evr­ópsk styrk­tæki­færi Rannís

Rannís kynnti fjölbreytt innlend og evrópsk styrktækifæri, meðal annars Horizon Europe, LIFE, Uppbyggingarsjóð EES, Eurostars, Tækniþróunarsjóð og Rannsóknasjóð.

Í umfjöllun um Horizon Europe var sérstaklega farið yfir þá klasa sem helst tengjast áskorunum mannvirkjageirans: klasa 4, Iðnaður og ný efni, klasa 5, Orka og loftslag, og klasa 6, Hringrás og auðlindir. Einnig var fjallað um tækifæri tengd borgum og fólki innan New European Bauhaus.

Jafnframt var fjallað um LIFE og þau tækifæri sem áætlunin býður upp á fyrir verkefni á sviði umhverfis- og loftslagsmála, hringrásarhagkerfis og orkuskipta, sem geta átt við verkefni í mannvirkjageiranum.

Áhersla var lögð á að styrkleiðir henta mismunandi verkefnum og því skiptir máli að skoða markmið verkefnisins, hversu langt það er komið og hvaða kröfur viðkomandi sjóður gerir. Þátttakendur fengu innsýn í hvernig hægt er að leita að viðeigandi styrkjaköllum og meta hvaða fjármögnunarleið gæti hentað verkefnahugmynd.

Nánari upplýsingar um græn styrktækifæri og ráðgjöf Rannís: Grænar leiðir

Frá hug­mynd að næstu skref­um

Viðburðinum lauk með vinnustofu þar sem þátttakendum gafst tækifæri til að ræða eigin verkefnahugmyndir, fá ráðgjöf og leiðsögn og skoða hvaða styrktækifæri gætu hentað þeim.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS