30. júlí 2026

Úthlutun hlutdeildarlána í júlí 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum nam rúmum 900 milljónum króna
  • Alls uppfylltu 30 umsóknir skilyrði til úthlutunar að andvirði 413,6 milljónir króna
  • Fjármagn dugði til úthlutunar eldri umsókna frá fyrri mánuðum sem uppfylltu skilyrði en höfðu ekki verið dregin út

HMS hefur lokið við úthlutun hlutdeildarlána í júlí. Alls bárust 54 umsóknir að fjárhæð 915 milljónir króna og 9 umsóknir sem ekki fengu úthlutun á fyrri úthlutunartímabilum en til úthlutunar í júlí voru að lágmarki 458 milljónir króna. Eftir yfirferð reyndust 30 umsóknir uppfylla öll skilyrði til úthlutunar og nam heildarfjárhæð þeirra 413,6 milljónum króna og fengu allir umsækjendur sem uppfylltu skilyrði lánsvilyrði. Ekki þurfti því að grípa til útdráttar í júlí.

Fjár­magn dugði fyr­ir öll­um um­sókn­um

Frá því í mars hefur fjárhæð umsókna sem uppfylltu öll skilyrði verið umfram það fjármagn sem var til ráðstöfunar hverju sinni. Því hefur þurft að velja umsóknir af handahófi í samræmi við forgangsreglur úthlutunar og bjóða þeim sem ekki hlutu úthlutun að færa umsóknir sínar yfir í næsta mánuð.

Í júlí dugði fjármagnið hins vegar til að samþykkja allar umsóknir sem uppfylltu skilyrði. Með úthlutuninni hefur því tekist að vinna upp þá uppsöfnun umsókna sem myndast hafði undanfarna mánuði.

Flest­ar sam­þykkt­ar um­sókn­ir í Hafnar­firði

Samþykktar umsóknir í júlí dreifðust á sjö sveitarfélög. Flestar voru vegna kaupa í Hafnarfirði, alls tíu, en sex umsóknir voru samþykktar vegna kaupa í Reykjavík. Fjórar umsóknir voru samþykktar í Sveitarfélaginu Ölfusi, þrjár bæði í Reykjanesbæ og á Akureyri, tvær á Akranesi og ein í Mosfellsbæ.

Fjöldi og fjárhæðir samþykktra hlutdeildarlána í júlí má sjá í töflu hér að neðan. 

Opn­að fyr­ir um­sókn­ir 4. ág­úst

Umsóknartímabilið fyrir ágúst úthlutun hlutdeildarlána opnar kl. 09:00 að morgni 4. ágúst en til úthlutunar verða að lágmarki 458 milljónir króna.

 Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS