9. september 2026
10. september 2026
Uppbygging mest á Suðurlandi miðað við stærð íbúðastofns
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðum í byggingu fækkar á milli mánaða en byggingaráformum fjölgar
- 1.970 íbúðir hafa orðið fullbúnar það sem af er ári, þar af 1.785 nýjar íbúðir
- Uppbygging er hlutfallslega mest á Suðurlandi, þar sem íbúðir í byggingu nema 6,4% af íbúðastofninum
Samkvæmt mælaborði HMS um íbúðir í byggingu eru nú 5.533 íbúðir skráðar í byggingu á landinu öllu. Í ágúst voru þær 5.790 og hefur þeim því fækkað um rúmlega 4% á milli mánaða. Á sama tíma fjölgaði byggingaráformum um 42% á milli mánaða eða úr 801 í 1.141. Byggingaráform vísa til íbúða sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru ekki hafnar og gefa því vísbendingu um mögulega uppbyggingu fram undan.
Rúmlega helmingur fullbúinna íbúða á höfuðborgarsvæðinu
Það sem af er ári hefur verið lokið við byggingu 1.969 íbúða á landinu öllu, þar af 1.785 nýrra íbúða. Flestar hafa orðið fullbúnar á höfuðborgarsvæðinu, eða 1.055, sem jafngildir um 54% heildarfjöldans.
Næstflestar íbúðir hafa orðið fullbúnar á Suðurlandi, 334 íbúðir, og þar á eftir koma Suðurnes með 262 íbúðir. Samanlagt eru þessir þrír landshlutar með um 84% þeirra íbúða sem lokið hefur verið við á árinu. Á Norðurlandi eystra og Vesturlandi hafa rúmlega 110 íbúðir orðið fullbúnar í hvorum landshluta en færri annars staðar.
Uppbygging hlutfallslega mest á Suðurlandi
Þegar fjöldi íbúða í byggingu er settur í samhengi við stærð íbúðastofnsins sker Suðurland sig úr. Þar eru 949 íbúðir í byggingu, sem jafngildir um 6,4% af íbúðastofninum.
Hlutfallið er næsthæst á Suðurnesjum, um 3,7%. Á höfuðborgarsvæðinu eru langflestar íbúðir í byggingu, 3.447, en þær jafngilda um 3,4% af íbúðastofninum. Á Norðurlandi eystra er hlutfallið um 3,0%. Í öðrum landshlutum er það á bilinu 0,3–1,8%.
Niðurstöður septembertalningar kynntar 22. september
Septembertalning HMS á íbúðum í byggingu stendur nú yfir og verða niðurstöður hennar kynntar 22. september. Í talningunni er aflað upplýsinga um stöðu framkvæmda á íbúðum í byggingu um land allt. Upplýsingar úr talningunni verða meðal annars nýttar til að uppfæra skráningar í fasteignaskrá. Mælaborð HMS um íbúðir í byggingu byggir á upplýsingum úr fasteignaskrá og mun því taka breytingum eftir því sem uppfærðar upplýsingar úr talningunni berast inn í skrána.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




