22. október 2026
Mánaðarskýrsla HMS fyrir október 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir október 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að umsvif á fasteignamarkaði verið lítil í lok sumars og að framboð nýrra íbúða til sölu hafi verið stöðugt frá áramótum. Í skýrslunni er einnig fjallað um að á byggingarmarkaði vænti greiningaraðilar meiri samdráttar í íbúðafjárfestingu í ár en óvissa ríkir um þróun næstu ára.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Auglýstum nýjum íbúðum til sölu hefur fjölgað lítið frá áramótum
Fasteignamarkaðurinn var daufur í lok sumars, en leita þarf aftur til ársins 2014 til að finna jafnfáa þinglýsta kaupsamninga í ágústmánuði. Nokkra viðspyrnu mátti hins vegar greina í septembermánuði, þótt markaðsvirkni sé enn lítil ef miðað er við síðustu ár.
Framboð nýrra íbúða á sölu hefur verið nokkuð stöðugt frá áramótum, þar sem dregið hefur úr uppbyggingu nýrra íbúða á sama tíma og minna er selt af þeim. Öðrum íbúðum á sölu fjölgar hins vegar ört á milli mánaða eftir því sem fasteignamarkaðurinn hefur kólnað.
Áfram dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði
Leigumarkaðurinn ber einnig merki kólnunar líkt og fasteignamarkaðurinn, þar sem leiguverð heldur ekki í við verðbólgu. Leigjendur telja framboð leiguíbúða hafa aukist á síðustu misserum, en ný leigumarkaðskönnun HMS bendir til þess að fleiri séu að festast á leigumarkaði heldur en áður.
Nýtt frumvarp um leigubremsu myndi takmarka reglubundnar leiguverðshækkanir á samningstíma við vísitölu neysluverðs og tíðni hækkana við tólfta hvern mánuð. Ýmsar undanþágur yrðu þó áfram til staðar í húsaleigulögum sem heimila breytingar á leigu vegna breyttra markaðsaðstæðna, rekstrarkostnaðar eða fjármagnskostnaðar.
Barnafjölskyldur skulda hlutfallslega meira í fasteignum sínum
Lánamarkaðurinn var minni að umfangi í ágúst heldur en í júlí síðastliðnum, þar sem virði hreinna nýrra útlána til heimila dróst saman. Ásókn í verðtryggð lán eykst á ný, en óverðtryggð lán eru enn í meirihluta hreinna nýrra útlána. Fastir vextir eru enn allsráðandi á meðal nýrra fasteignalána, líkt og þeir hafa verið frá vaxtadómunum svokölluðu í október 2025.
Eigið fé fjölskyldna í fasteignum hefur að meðaltali aukist frá því í fyrra, þar sem vextir hafa hækkað og dregið hefur úr skuldsetningu. Þó er skuldsetning mismikil eftir fjölskyldugerðum og bera einstæðir foreldrar þyngstu skuldabyrðarnar.
Mikil óvissa í framtíðarspám um íbúðafjárfestingu
Byggingarmarkaðurinn hefur dregist saman, þar sem fjármálafyrirtæki veita færri ný útlán til byggingarfyrirtækja. Greiningardeildir bankanna spá allar samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár, en þær greinir á um framtíðarþróun íbúðafjárfestingar.
Stærðardreifing íbúða sem eru í byggingu er í samræmi við eftirspurn síðustu ára, en minnstu og stærstu íbúðirnar hafa selst betur en aðrar. Meirihluti óseldra nýrra íbúða er á stærðarbilinu 80-120 fermetrar og í stórum fjölbýlishúsum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




