2. október 2026

Uppbygging leiguíbúða með viðráðanlegan húsnæðiskostnað annar ekki eftirspurn

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fjármögnun, framkvæmdarkostnaður og aðgengi að hentugum lóðum eru enn meðal helstu áskorana sem óhagnaðardrifin húsnæðisfélög standa frammi fyrir
  • Mikilvægt er að auka yfirsýn yfir húsnæðisþörf með samræmdum biðlistum
  • Óvissa ríkir um stefnu sveitarfélaga í húsnæðismálum að nýlega loknum sveitarstjórnarkosningum

Í vikunni hittust fulltrúar óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga, sem standa að uppbyggingu íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði, ásamt HMS. Á fundinum var fjallað um stöðu verkefna félaganna og helstu áskoranir við áframhaldandi uppbyggingu. Vettvangurinn var stofnaður sem liður í framkvæmd rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð húsnæðis.

Helstu áskor­an­ir hafa lít­ið breyst

Á fundinum var meðal annars rætt um að hátt vaxtastig, aukinn fjármögnunar- og framkvæmdakostnaður og takmarkað framboð byggingarhæfra lóða séu helstu áskoranir sem félögin standa frammi fyrir og hafa áhrif á möguleika þeirra til að ráðast í ný verkefni til frekari uppbyggingar. Þessar áskoranir eru þó ekki nýjar af nálinni og hafa komið til umræðu áður. Aðgengi að lóðum og fyrirsjáanleg fjármögnun til lengri tíma eru því meðal þeirra þátta sem félögin telja mikilvægust fyrir framhald uppbyggingarinnar.

Meðal helstu óvissuþátta sem fundarmenn voru almennt sammála um var breytt landslag sveitarfélaga og sú óvissa sem ríkir um framtíðarstefnu þeirra á þessu sviði í kjölfar sveitastjórnarkosninga á árinu.

Sam­ræmd­ir bið­list­ar gætu gef­ið betri mynd af þörf

Nokkur félaganna eru með langa biðlista og vinna jafnframt að því að bæta yfirsýn yfir húsnæðisþörf síns markhóps. Rætt var um að biðlistar hafi áður verið í veldisvexti en að félögin sjái nú að hægt hafi á þeirri þróun. Biðlistar eru þó enn langir og uppbygging annar ekki eftirspurn hjá flestum félögunum. Á fundinum var fjallað um mikilvægi þess að samræma betur upplýsingar um biðlista hjá húsnæðisfélögum og sveitarfélögum til að fá skýrari mynd af raunverulegri eftirspurn.

Mik­il­væg­ur vett­vang­ur til upp­lýs­inga­miðl­un­ar

Að samráðsvettvangnum koma ásamt HMS; Bjarg íbúðafélag, Byggingafélag námsmanna, Félagsstofnun stúdenta, Félagsbústaðir, Búseti, Landssamtökin Þroskahjálp, Brynja leigufélag, Leigufélagið Bríet og Brák íbúðafélag.

Samráðsvettvangurinn er mikilvægur liður í reglubundnu samtali HMS og óhagnaðardrifinna leigufélaga. Vettvangurinn gefur félögunum kost á að miðla upplýsingum um stöðu verkefna, ræða sameiginlegar áskoranir og vekja athygli á þáttum sem hafa áhrif á uppbyggingu almenna íbúðakerfisins.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS