19. nóvember 2026

Umhverfismat októbermánaðar og mál í kynningu 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Í október voru gefin út fjögur álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana 
  • Eitt álit um matsáætlun og þrjár ákvarðanir um matsskyldu 
  • Þá eru tvö mál í kynningu, endurvinnsla lífræns úrgangs vestan Þorlákshafnar og ferðaþjónusta og frístundabyggð að Laxárbakka 

 

Álit um matsáætlun 

Mýnesnáma, Múlaþingi – álit um matsáætlun 

Ylur ehf. áformar áframhaldandi efnistöku úr Mýnesnámu í landi Mýness í Múlaþingi. Áætlað er að um 400.000 m³ efnis hafi þegar verið unnið úr Mýnesnámu á um 16 ha landsvæði. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér allt að 400.000 m³ frekari efnistöku. Áætlaður vinnslutími Mýnesnámu er um 15 ár. 

 

Ákvörðun um matsskyldu 

Selfosslína 1, breyting á legu vestan Ölfusár – ákvörðun um matsskyldu 

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum 

Efnistaka úr Eyrarbakkafjöru (náma E2), Árborg – ákvörðun um matsskyldu 

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum 

Vatnsnesvegur (711-07), Húnaþingi vestra – ákvörðun um matsskyldu 

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum 

 

Umhverfismatsskýrsla til kynningar 

Ferðaþjónusta og frístundabyggð að Laxárbakka 

Laxárbakki Resort ehf. hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna umhverfismats uppbyggingar ferðaþjónustu á Laxárbakka á sunnanverðu Snæfellsnesi, í Eyja- og Miklaholtshreppi. Kynningartími 16. Nóvember- 5. janúar 2027.  

 

Matsáætlun til kynningar  

Endurvinnsla lífræns úrgangs vestan Þorlákshafnar 

Áformin felast í því að reisa úrvinnslustöð sem tekur við lífrænum úrgangi frá fiskeldi sem starfar á svæðinu vestan Þorlákshafnar. Einnig stendur til að taka við húsdýraáburði frá landbúnaði. Afurðirnar verða lífgas og lífrænn áburður. Kynningartími 26. október – 24. nóvember.  

 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS