14. september 2026

Umhverfismat ágústmánaðar og mál í kynningu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Í ágúst voru gefin út 3 álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
  • Eitt álit um matsáætlun og tvær ákvörðanir um matsskyldu 
  • Þá eru í kynningu 2 umhverfismatsskýrslur og ein matsáætlun. Opið er fyrir athugasemdir á Skipulagsgátt

Álit um matsáætlun

Reykjanesvirkjun, meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni – álit um matsáætlun

Áform HS orku felast í meðferð og förgun á útfellingum með aukna náttúrulega geislavirkni (NORM) úr lögnum frá borholum Reykjanesvirkjunar. Hreinsun eigi sér stað við reglubundið viðhald þar sem efnið sé fjarlægt á afmörkuðum hreinsiplönum.

Ákvörðun um matsskyldu

Veiting Austurkvíslar Þjórsárkvísla í fyrri farveg – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Ákvörðun HMS hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Úrskurður liggur ekki fyrir.

Stytting Hörgeyrargarðs í Vestmannaeyjum – ákvörðun um matsskyldu

Niðurstaða: framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Umhverfismatsskýrslur til kynningar

Reykjanesbraut, Hafnavegur - Garðskagavegur

Vegagerðin áformar tvöföldun Reykjanesbrautar á 4,7 km löngum kafla milli Hafnavegar og Garðskagavegar. Kynningartími 31.08.2026 - 13.10.2026.

Skógrækt í landi Ljárskóga

Yggdrasill Carbon hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í Dalabyggð í samstarfi við landeigendur á svæði sem nær yfir alls 5.500 ha. Markmið skógræktarverkefnisins er að binda koltvísýring úr andrúmslofti, búa til beitarskóg, byggja upp skógarauðlind í samstarfi við sauðfjárbændur og græða upp landið ásamt því að vera framlag í baráttunni gegn þeim miklu loftslagsbreytingum sem eru að eiga sér stað. Kynningartími 1.09.2026 - 13.10.2026.

Matsáætlun til kynningar

Mýnesnáma

Ylur ehf. áformar áframhaldandi efnistöku úr Mýnesnámu í landi Mýness í Múlaþingi. Áætlað er að um 400.000 m³ efnis hafi þegar verið unnið úr Mýnesnámu á um 16 ha landsvæði. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér allt að 400.000 m³ frekari efnistöku. Efnistakan mun að hluta fara fram innan þess svæðis sem þegar hefur verið raskað en einnig er gert ráð fyrir að vinnslan nái til 8 ha lands sem ekki hefur áður verið raskað með efnistöku. Efnistökunni verður áfangaskipt og er stefnt að því að ljúka frágangi einstakra vinnslusvæða áður en vinnsla færist yfir á næsta áfanga. Áætlaður vinnslutími Mýnesnámu er um 15 ár. Kynningartími 21.08.2026 - 18.09.2026.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS