11. september 2026

Stúdentaíbúðir draga niður meðalleigu í ágúst

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Mikil hreyfing var á leigumarkaði í ágúst vegna stúdenta
  • Meðalleigufjárhæð lækkaði um 19% að raunvirði samhliða auknu vægi stúdentaíbúða
  • Húsnæðisstuðningur vegur þyngst hjá tekjulægstu leigjendunum

Fjölgun samninga um stúdentaíbúðir við upphaf skólaárs setti svip sinn á leigumarkaðinn í ágúst. Aukið vægi þessara íbúða dró niður meðalleigufjárhæð mánaðarins en áhrifin voru talsvert minni á meðalfermetraverð. Ný greining á húsnæðisbyrði sýnir jafnframt að húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur létta sér í lagi undir með tekjulægstu leigjendunum.

Stökk í fjölda leigusamninga við upphaf skólaárs

Alls tóku 3.435 leigusamningar gildi í leiguskrá HMS í ágúst en 3.009 féllu úr gildi. Bæði nýjum og útrunnum samningum fjölgaði þannig verulega frá júlí. Stór hluti fjölgunarinnar var meðal óhagnaðardrifinna leigufélaga og skýrist einkum af stúdentaíbúðum. Fjöldi samninga um slíkar íbúðir eykst jafnan við upphaf skólaárs að hausti og dregst aftur saman þegar samningar renna út að vori. Sambærilegar árstíðasveiflur hafa því sést á leigumarkaði undanfarin ár.

Meðalleiga lækkar vegna breyttrar samsetningar

Fjölgun stúdentaíbúða hefur töluverð áhrif á meðaltöl leigumarkaðarins. Stúdentaíbúðir eru að jafnaði minni en aðrar leiguíbúðir og leiguverð þeirra lægri. Þegar vægi þeirra eykst í nýjum leigusamningum lækkar því meðalleigufjárhæð, án þess að það þurfi að endurspegla sambærilega lækkun leiguverðs á almennum markaði.

Á föstu verðlagi lækkaði meðalleigufjárhæð á landsvísu um 19% milli júlí og ágúst, úr rúmlega 243 þúsund krónum í tæplega 197 þúsund krónur. Sambærileg lækkun hefur komið fram í ágúst undanfarin ár, samhliða því að nýir samningar um stúdentaíbúðir taka gildi.

Áhrifin eru þó töluvert minni þegar horft er til leiguverðs á fermetra. Meðalleiguverð á fermetra lækkaði um 5% milli mánaða, úr um 3.877 krónum í júlí í 3.701 krónu í ágúst. Minni lækkun fermetraverðs skýrist meðal annars af því að fermetraverð er almennt hærra í smærri íbúðum.

Húsnæðisstuðningur vegur þyngst meðal tekjulægri leigjenda

Í nýrri greinargerð ASÍ, SA og ríkisins, Tekjuþróun og fjárhagsstaða samfélagshópa, er meðal annars fjallað um þróun húsnæðisbyrði ólíkra hópa. Niðurstöður sýna að húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur hafa töluverð áhrif á greiðslubyrði leigjenda, einkum meðal tekjulægri heimila.

Árið 2025 nam húsaleiga að miðgildi tæplega 23% af ráðstöfunartekjum leigjenda í fullri atvinnu. Þegar tekið hafði verið tillit til húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings lækkaði hlutfallið í rúmlega 20%. Stuðningurinn lækkaði því húsnæðisbyrði leigjenda um tvö til þrjú prósentustig að jafnaði.

Áhrif stuðningsins eru hins vegar talsvert meiri í neðstu tekjutíundunum og minnkar eftir því sem tekjur hækka. Þegar tekið er tillit til húsnæðisstuðnings var greiðslubyrði leigjenda árið 2025 svipuð og greiðslubyrði íbúðareigenda.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS