1. júlí 2026

Sólarvirki (sólarsellukerfi) með kló geta verið hættulegar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Sólarvirki má ekki tengja við raflögn húss með kló og tengli
  • Slík tenging getur valdið hættu á raflosti og bruna
  • Uppsetning sólarvirkja skal vera á ábyrgð löggilts rafverktaka

HMS vekur athygli á að sólarvirki (sólarsellukerfi, sólarorkukerfi) sem tengjast venjulegri innstungu (tengli) með kló geta skapað verulega hættu. Þessi sólarvirki eru oftast lítil og geta meðal annars verið ætluð til uppsetningar á svölum.

Hver er hætt­an?

  1. Raflagnir bygginga eru hannaðar með það í huga að raforka berist inn í kerfið við upphaf þeirra, inntak í rafmagnstöflu. Þaðan er rafmagninu dreift í gegnum varbúnað, yfirstraumsvörn og bilunarstraumsvörn, sem verndar raflögnina og notendur.
    Þegar nýju inntaki raforku er bætt er bætt við annars staðar, til dæmis með því að tengja sólarvirki með kló í innstungu, getur það haft í för með sér að varbúnaðurinn virki ekki sem skyldi eða alls ekki, sem getur leitt til hættu á bæði raflosti og bruna.
  2. Tenglar og annar rafbúnaður er almennt gerður þannig að ætlast er til að rafstraumur flæði í tiltekna átt, þ.e. út úr tengli en ekki inn í hann. Ef tengillinn er ekki gerður til að vera inntak getur það haft í för með sér brunahættu.
  3. Sólarsellur hætta ekki að framleiða rafmagn á meðan eitthvert ljós er til staðar, hvort sem þær eru tengdar notanda eða ekki. Klóin getur því verið spennuhafa þó hún sé ekki í sambandi, sem getur haft í för með sér hættu á raflosti.
  4. Raflögnin, eða hluti hennar, getur verið spennuhafa sé klóin í sambandi, jafnvel þó „slökkt“ hafi verið á aðalvari hennar, sem hefur í för með sér hættu á raflosti fyrir þá sem vinna við raflögnina.

 

Hvað segja regl­urn­ar?

Reglugerð um raforkuvirki vísar meðal annars til evrópskrar staðlaraðar varðandi öryggi raflagna, ÍST HD 60364. Í lið 551.7.2 í þessari staðlaröð kemur fram að ekki megi tengja orkuframleiðslu, til dæmis sólarvirki, við raflögn með kló og tengli. Að auki skal raflögnin hönnuð fyrir það viðbótarálag sem ný orkuframleiðsla leggur af mörkum.

Sérstakar reglur varðandi uppsetningu sólarvirkja er að finna í ÍST HD 60364-7-712, sjá einnig leiðbeiningar HMS: Leiðbeiningar um raflagnir sólarvirkja | Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun.

 

Er bann­að að setja upp lít­il sól­ar­virki, t.d. á sval­ir?

Nei, það er ekki bannað. Þau má þó ekki tengja við raflögn með kló og innstungu. Líkt og önnur sólarvirki skulu þau tengjast raflögn húss samkvæmt gildandi reglum. Öll uppsetning sólarvirkja, eins og öll raflagnavinna, skal unnið á ábyrgð löggilts rafverktaka.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS