13. apríl 2026

Sameiginlegar verklýsingar gætu sparað milljarða 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Yfir 50 manns sóttu vinnustofu hjá HMS miðvikudaginn 8. apríl þar sem rætt var um mótun sameiginlegs verklýsingagrunns fyrir íslenskan mannvirkjaiðnað. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun Burðar, samstarfsvettvangs mannvirkjarannsókna og prófana. Markmiðið er að auka bæði skilvirkni og gæði. Áætlað er að samræmdar verklýsingar geti skilað verulegum sparnaði í mannvirkjagerð á komandi árum. 

Á vinnustofunni voru lögð drög að framtíðarsýn og rætt um kosti og galla þess að stofna sjálfstæð félagasamtök, Verklýsingar Íslands, að fyrirmynd BIM Ísland. Slík félagasamtök myndu þróa og hýsa samræmdar grunnverklýsingar fyrir húsnæðis- og mannvirkjagerð á landsvísu. 

Af hverju núna? 

Gerð samræmdra grunnverklýsinga í mannvirkjagerð á Íslandi er ekki nýtt verkefni. Á síðustu árum hefur þó nokkrum sinnum verið hafin vegferð að undirbúningi þeirra. Í dag er hins vegar kominn kraftur í verkefnið aftur þar sem það er hluti aðgerða í Vegvísi að bættu rannsóknarumhverfi og þar með eitt verkefna Burðar.  

Árið 2024 fékk Verkplan ehf. styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði. Markmiðið var að samræma grunnverklýsingar á Íslandi og verkefnið unnið í samstarfi við Vegagerðina. Í framhaldi af þeirri vinnu var myndaður hópur sem hélt utan um vinnustofuna. Í honum eru fulltrúar frá HMS og Burði, Samtökum iðnaðarins, Vegagerðinni, FSRE og Verkplani. 

Hvers vegna eru verk­lýs­ing­ar ekki sam­ræmd­ar? 

Verklýsingar hér á landi eru ekki samræmdar milli verkkaupa sem getur leitt til óskýrra krafna og væntinga. Þetta getur valdið miklum mismuni í kostnaðaráætlunum, aukaverkum og þar af leiðandi óvissu í verðlagningu tilboða sem getur numið allt að 20-40%. Stórir verkkaupar þekkja vandann vel en skortur hefur verið á sameiginlegu átaki til úrbóta. Lærdómur úr fyrri verkefnum skilar sér sjaldan áfram, sem leiðir til endurtekninga á mistökum. 

Hluti af þessari stafrænu vegferð byggir á staðlinum ÍST NS 3459:2023 sem lýsir því hvernig flytja eigi upplýsingar rafrænt milli kerfa í byggingar- og mannvirkjaverkefnum. Þetta tryggir hnökralaus samskipti milli kerfa óháð því hvaða hugbúnaður er notaður og styður vel við Open BIM hugmyndafræðina. 

Sparn­að­ur við eina stóra fram­kvæmd stend­ur und­ir kostn­aði verk­lýs­inga­grunns 

Samkvæmt greiningum frá Verkplani ehf. er áætlað að samræmdar verklýsingar geti skilað allt að 2-5% sparnaði af framkvæmdakostnaði. Sem dæmi gæti framkvæmd eins og á Arnarnesvegi numið 138 - 347 milljónum króna. Í nágrannalöndum okkar hafa svipuð kerfi verið notuð áratugum saman með góðum árangri og hafa þar með tryggt betri nýtingu fjármuna.  

Vinnustofan staðfesti mikinn vilja innan iðnaðarins og þeirra sem vinna með opinber innkaup til að vinna saman að þessu mikilvæga verkefni. 

Næstu skref fela í sér frekari mótun skipulags, ábyrgðar og fjármögnunar verkefnisins. 

 Áhugasamir geta skráð sig á póstlista til að fylgjast með framvindu verkefnisins. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS