24. nóvember 2026

Íslensk arkitektúrverkefni í sviðsljósinu erlendis

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Þrjú íslensk arkitektúrverkefni hlutu alþjóðlegar viðurkenningar fyrir framúrskarandi hönnun
  • Verkefnið Lavaforming er til sýnis í Frakklandi þar sem möguleikar á nýtingu hrauns sem byggingarefnis eru kannaðir
  • Bókin Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur hefur verið gefin út á dönsku

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur nýlega birt fréttir af íslenskum arkitektum og verkefnum þeirra sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi. Þrjú verkefni hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar, íslenskt rannsóknar- og hönnunarverkefni er til sýnis í Frakklandi og bók um byggingararf hefur verið gefin út í Danmörku. Verkefnin endurspegla fjölbreytt viðfangsefni íslenskra arkitekta og starfsemi þeirra erlendis.

Heið­ursorða Eu­gens prins til eig­enda Basalt arki­tekta

Sigríður Sigþórsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Marcos Zotes og Perla Dís Kristinsdóttir, eigendur Basalt arkitekta, hlutu heiðursorðu Eugens prins fyrir framúrskarandi listrænt framlag. Karl XVI Gústaf Svíakonungur afhenti þeim orðuna við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi 17. nóvember.

Viðurkenningin er meðal annars veitt fyrir framlag til lista og arkitektúrs á Norðurlöndum. Í umfjöllun um verk Basalt arkitekta er lögð áhersla á hvernig stofan vinnur með sérkenni íslenskrar náttúru og hefur skapað sérstöðu á sviði hönnunar baðstaða og annarra mannvirkja.

Lesa nánar um viðurkenningu Basalt arkitekta

Mynd úr frétt á vefsíðu Basalt

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Baug­ur Bjólfs verð­laun­að­ur fyr­ir hönn­un

Útsýnispallurinn Baugur Bjólfs við Seyðisfjörð hlaut Dezeen Awards 2026 sem besta smærra arkitektúrverkefnið (Small Project of the Year). Arkibygg og ESJA arkitektar stóðu að hönnun mannvirkisins, sem hlaut jafnframt áhorfendaverðlaun í sínum flokki. Alls komu yfir 4.300 verkefni frá 91 landi til greina í samkeppninni.

Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem stendur í um 650 metra hæð yfir Seyðisfirði. Hönnun hans vísar til sögu um landnámsmanninn Bjólf, sem fjallið er kennt við, og tengir þannig mannvirkið við sögu og náttúru svæðisins.

Lesa nánar um Baug Bjólfs

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Lava­form­ing kynnt á al­þjóð­legri sýn­ingu í Frakklandi

Rannsóknar- og hönnunarverkefnið Lavaforming eftir s. ap arkitekta er nú til sýnis á OVNi-listahátíðinni í Nice í Frakklandi. Verkefnið var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í arkitektúr árið 2025 og hefur einnig verið kynnt í Montreal og Rotterdam.

Í Lavaforming eru rannsakaðir möguleikar þess að nýta hraun sem byggingarefni. Verkefnið sameinar rannsóknir á eiginleikum efnisins og hugmyndir um nýjar aðferðir við mannvirkjagerð. Sýningin í Nice stendur yfir til 8. janúar 2027.

Lesa nánar um Lavaforming

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Verk­efn­ið STÖNG – (End­ur)túlk­un hlýt­ur verð­laun í Par­ís

Hönnunarverkefnið STÖNG – (Endur)túlkun eftir SP(R)INT STUDIO var valið menningarbygging ársins á DNA Paris Design Awards 2026. Verkefnið snýr að varðveislu og miðlun fornminja á Stöng í Þjórsárdal.

Við hönnunina var ákveðið að nýta eldri yfirbyggingu fornminjanna í stað þess að reisa nýtt mannvirki. Sú nálgun gerði kleift að takmarka rask á svæðinu og nýta það sem fyrir var. Verkefnið sýnir hvernig endurbætur og aðlögun eldri mannvirkja geta stuðlað að varðveislu menningararfs.

Lesa nánar um hönnun verkefnisins STÖNG – (Endur)túlkun

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Jarð­setn­ing eft­ir Önnu Maríu Boga­dótt­ur gef­in út á dönsku

Bókin Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur, arkitekt og rithöfund, hefur verið gefin út í Danmörku undir heitinu Jordfæstelse. Bókin kom fyrst út á íslensku árið 2022 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2024.

Í bókinni er fjallað um áhrif þess þegar byggingar hverfa úr borgarumhverfinu og hvernig þær tengjast sögu, minningum og menningararfi. Í tilefni dönsku útgáfunnar fór fram viðburður í Kaupmannahöfn í lok október þar sem meðal annars var rætt um varðveislu bygginga og framtíð byggðs umhverfis.

Lesa nánar um danska útgáfu Jarðsetningar

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúr

Mynd úr frétt á vefsíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúr

Viðurkenningarnar undirstrika þann árangur sem íslenskir arkitektar hafa náð á alþjóðavettvangi og vekja athygli á fjölbreytni og sérstöðu íslenskrar byggingarlistar.

HMS óskar verðlaunahöfum og öllum þeim sem standa að verkefnunum til hamingju með árangurinn.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS