25. ágúst 2026
25. ágúst 2026
Rb-blað mánaðarins: Tré og trégluggar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Tré og timbur eru meðal mikilvægustu byggingarefna í mannvirkjagerð
- Rétt efnisval og þekking á eiginleikum viðar stuðlar að aukinni endingu mannvirkja
- Góður frágangur tréglugga hjálpar til við að fyrirbyggja rakaskemmdir og viðhaldsþörf
Í rúma hálfa öld hafa Rb-tækniblöðin miðlað þekkingu og leiðbeiningum um mannvirkjagerð og byggingartækni. Samhliða útgáfu nýrra Rb-tækniblaða er því tilefni til að rifja upp eldri blöð sem enn hafa mikið notagildi og eiga fullt erindi við viðfangsefni samtímans.
Nú þegar vætutíð haustsins fer að ganga í garð er gott að huga að timburgluggum húsa. Að þessu sinni er athygli vakin á Rb-blaðinu Tré – trjátegundir og efniseiginleikar viðarins frá árinu 2016.
Tré – trjátegundir og efniseiginleikar viðarins
Þar er fjallað um uppbyggingu viðar og helstu trjátegundir sem notaðar eru í byggingariðnaði. Farið er yfir eiginleika algengra timburtegunda, meðal annars styrk þeirra og endingu, auk áhrifa raka á viðinn. Blaðið veitir góðan grunnskilning á timbri sem byggingarefni og þeim þáttum sem hafa áhrif á endingu þess og eiginleika í mannvirkjum.
Jafnframt er vakin athygli á reynslublaðinu Skemmdir á trégluggum frá árinu 1997.
Skemmdir á trégluggum
Þar er fjallað um algengar orsakir rakaskemmda og fúa í trégluggum og bent á mikilvægi vandaðs frágangs til að tryggja endingu þeirra. Sérstök áhersla er lögð á frárennsli vatns, halla botnfalsa og glerlista, loftun og réttar þéttingar. Reynslan sýnir að skemmdir hefjast gjarnan þar sem vatn safnast fyrir eða kemst inn í viðinn. Í blaðinu má því finna gagnlegar ábendingar um hvernig fyrirbyggja megi slíkar skemmdir með góðri hönnun, vandaðri framkvæmd og reglulegu viðhaldi.
Góð ráð eldast vel
Þótt bæði blöðin hafi verið gefin út fyrir nokkrum árum eiga þau enn fullt erindi við fagfólk í mannvirkjagerð og húseigendur. Saman varpa þau ljósi á hvernig efniseiginleikar timburs, rétt efnisval og vandaður frágangur hafa áhrif á endingu byggingarhluta. Með því að huga að þessum þáttum má draga úr viðhaldsþörf og fyrirbyggja kostnaðarsamar rakaskemmdir síðar á líftíma mannvirkja.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




