25. ágúst 2026

Óskað eftir upplýsingum vegna vatnaáætlunar 2028-2033

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vatn varðar okkur öll. Samráð og aðkoma almennings og annarra aðila að ákvörðunum sem geta haft áhrif á vatnshlot eru grundvallarþáttur. Mikilvægt er að tryggja sem best aðgengi að upplýsingum um ferli máls og að við áform og undirbúning framkvæmda sé hugað að kynningu áhrifamats vatnshlota
  • Óskað er eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra
  • Markmið gagnaöflunar er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum

HMS vekur athygli á að Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands.

Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði.

Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar

Unnið er að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028-2023. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum.

Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027.

Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot

Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnhlotsins náist.

Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdum eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. 

Upplýsingar birtar með vatnaáætlun

Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033.

Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þurfi ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar.

Skilafrestur

Skilafrestur er til og með 30. september 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Lagagrunnur

Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns.

Nánari upplýsingar

Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS