11. júní 2026
11. júní 2026
Opinn fundur um fyrstu skrefin á fasteignamarkaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Rúmlega 40 prósent kaupsamninga í apríl vörðuðu fyrstu fasteignakaup
- Ýmis úrræði eru í boði sem geta hjálpað fyrstu kaupendum inn á fasteignamarkað
- HMS stendur fyrir opnum fundi fyrir fyrstu kaupendur mánudaginn 15. júní kl. 17:30
Kólnað hefur á fasteignamarkaði undanfarin misseri þar sem hægt hefur á verðhækkunum og framboð íbúða til sölu hefur aukist mikið. Fasteignasalar telja jafnframt í sífellt meira mæli að markaðnum megi lýsa sem kaupendamarkaði. Við slíkar aðstæður er samningsstaða kaupenda alla jafna sterk og þeir geta gefið sér meiri tíma í að íhuga fasteignakaup.
HMS stendur fyrir opnum fundi fyrir fyrstu kaupendur mánudaginn 15. júní kl. 17:30 í Borgartúni 21. Á fundinum munu fulltrúar HMS meðal annars fjalla um ólíkar tegundir húsnæðislána, sértæk úrræði fyrir fyrstu kaupendur og viðhald fasteigna. Páll Pálsson, eigandi Pálsson fasteignasölu, og Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, verða jafnframt gestir á fundinum og munu miðla reynslu sinni af fyrstu kaupum.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Fyrstu skrefin á fasteignamarkaði
Fyrstu kaupendur öflugir í apríl
Rétt rúmlega 40 prósent kaupsamninga í apríl vörðuðu fyrstu fasteignakaup, samkvæmt mælaborði HMS um fyrstu kaupendur. Það er hæsta hlutfall fyrstu kaupa sem mælst hefur innan mánaðar á því tímabili sem mælaborðið tekur til, þ.e. frá því í ársbyrjun árið 2007. Í því samhengi er þó rétt að hafa í huga að hlutfallið sveiflast talsvert á milli mánaða og mældist til að mynda tæp 36 prósent í mars og 37 prósent í febrúar. Hlutfallið hefur verið að meðaltali rúm 34 prósent undanfarna 12 mánuði og 33 prósent undanfarin 10 ár.
Staða fyrstu kaupenda virðist því vera nokkuð sterk um þessar mundir þrátt fyrir að fjármögnunarkostnaður fasteigna hafi verið hár um nokkurt skeið. Nýlegar breytingar á reglum um hlutdeildarlán sem tóku gildi um áramótin hafa eflaust haft áhrif þar á, en með þeim stækkaði mengi þeirra fyrstu kaupenda sem geta nýtt sér úrræðið. Lánþegaskilyrði fyrstu kaupenda voru jafnframt rýmkuð í nóvember síðastliðnum þegar fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hækkaði hámark veðsetningarhlutfalls fyrstu kaupenda úr 85 prósentum í 90 prósent.
Algengast er að fyrstu kaupendur kaupi íbúðir í fjölbýli
Rúmlega 84 prósent kaupsamninga um fyrstu fasteignakaup í apríl síðastliðnum vörðuðu kaup á íbúð í fjölbýli. Meðalkaupverð fyrstu kaupenda á fjölbýlisíbúðum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið rétt um 70 milljónir króna undanfarna þrjá mánuði á meðan meðalkaupverð annarra kaupenda hefur verið tæplega 90 milljónir króna.
Þrátt fyrir lægra meðalkaupverð hefur meðalfermetraverð fyrstu kaupenda verið nokkru hærra en annarra kaupenda fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði. Það skýrist þó meðal annars af því að fyrstu kaupendur hafa keypt að meðaltali um fjórðungi minni íbúðir á svæðinu, eða um 86 fermetra íbúðir samanborið við 116 fermetra íbúðir meðal annarra kaupenda.
Nánar verður fjallað um fasteignakaup fyrstu kaupenda í mánaðarskýrslu HMS fyrir júnímánuð sem gefin verður út 18. júní næstkomandi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




