12. júní 2026

Nýskráning leigusamninga mun minni á fyrstu mánuðum ársins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Nettófjölgun leigusamninga var 72% minni á fyrstu fimm mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra
  • Samningum sem féllu úr gildi fjölgaði verulega í maí þar sem leigusamningar á námsgörðum renna út á þessum árstíma
  • Um 39% þeirra íbúða sem lögaðilar hafa keypt á höfuðborgarsvæðinu á síðustu fimm árum voru í nýbyggingum

Maímánuður á leigumarkaði litast af leigusamningum námsmanna, en margir þeirra renna úr gildi í mánuðinum. Á síðustu fimm árum hafa lögaðilar keypt um 4.400 íbúðir og stóðu hagnaðardrifin félög að baki stærstum hluta þessara kaupa.  

Þetta og margt fleira kemur fram í mánaðarskýrslu HMS fyrir júnímánuð sem gefin verður út næsta fimmtudag.

Leigusamningar námsmanna setja mark sitt á maímánuð

Í maí féllu rúmlega 2,5 sinnum fleiri leigusamningar úr gildi en í apríl. Sú þróun skýrist hins vegar að stórum hluta af því að margir leigusamningar um íbúðir á námsgörðum renna út á þessum tíma árs. Þrátt fyrir það voru útrunnir samningar 22% fleiri en í maí í fyrra.

Á sama tíma fjölgaði nýskráðum leigusamningum um 10% frá fyrri mánuði. Nýskráningar voru þó 7% færri en í maí í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hafa alls 7.547 leigusamningar tekið gildi á meðan 6.764 hafa fallið úr gildi. Nettófjölgun samninga nam því 783 samningum. Til samanburðar fjölgaði leigusamningum um 2.531 á sama tímabili árið 2025, sem þýðir að nettófjölgun í ár var um 69% minni en í fyrra.

Stór hluti íbúða sem lögaðilar hafa keypt er í nýbyggingum

Samkvæmt kaupskrá hafa lögaðilar keypt samtals 4.357 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu frá janúar 2021 til maí 2026. Stór hluti kaupanna, eða um 39%, voru á nýbyggingum.

Hagnaðardrifin félög stóðu að baki langstærstum hluta kaupanna, um 81%, og voru flest kaup þeirra í Reykjavík. Jafnframt voru umtalsverð kaup í Kópavogi og Hafnarfirði þar sem íbúðauppbygging hefur verið mikil undanfarin ár. Í samræmi við það var mikill meirihluti kaupa hagnaðardrifinna félaga á þessu svæði í nýbyggingum.

Kaup óhagnaðardrifinna félaga voru færri og þrjár af hverjum fjórum íbúðum voru staðsettar í Reykjavík. Flest kaup óhagnaðardrifinna félaga utan Reykjavíkur voru í Hafnarfirði og Kópavogsbæ. Hlutfall nýbyggingakaupa hjá óhagnaðardrifnum félögum var 82% sem er talsvert hærra en hjá hagnaðardrifnum félögum (29%).

 

Uppfært 12. Júní kl. 14:45. Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom ranglega fram að yfir 10 þúsund íbúðir hafi verið keyptar af lögaðilum frá janúar 2021 til maí 2026 og að meirihluti þeirra hafi verið í nýbyggingum. Fréttin hefur nú verið uppfærð með réttum tölum, beðist er velvirðingar á mistökunum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS