30. apríl 2026

Nýsköpun og framtíðarsýn í byggingarefnum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Sjálfbær mannvirkjagerð byggir á því að nota mismunandi efni saman, ekki treysta á eitt efni
  • Mikil tækifæri felast í íslenskum viði, sérstaklega ösp, og þörf er á að þróa staðla í takt við nýja þekkingu
  • Unnið er að því að draga úr umhverfisáhrifum byggingarefna, meðal annars með betri nýtingu steypu og aukinni hringrás

HMS stóð í dag fyrir viðburðinum Timbur vs steypa – rannsóknir, framleiðsla, hönnun og uppbygging til framtíðar í samstarfi við IÐUNA Fræðslusetur, sem hluta af Nýsköpunarvikunni. Viðburðurinn var vel sóttur og vakti mikla athygli meðal fagfólks í mannvirkjagerð.

Viðburðurinn fjallaði um nýsköpun, þekkingu og framtíðarsýn í vali og notkun byggingarefna á Íslandi, með áherslu á timbur, steypu og samsettar lausnir. Á dagskrá voru fjölbreytt erindi frá ólíkum sjónarhornum og í umræðum kom skýrt fram að sjálfbær uppbygging til framtíðar byggir síður á einu efni, heldur á því að velja rétt efni á réttan stað, í réttu magni, með skýran tilgang og líftíma í huga.

Ís­lensk­ur trjá­við­ur og nýt­ing hans

Nokkur erindi beindu sjónum að íslenskum trjáviði, einkum ösp, sem mögulegu byggingarefni. Þar var fjallað um útbreiðslu asparinnar hérlendis, eiginleika hennar og tækifæri til aukinnar timburnýtingar og niðurstöður rannsókna á rúmþyngd, styrk, stífni og fleiru. Einnig var rætt um styrkflokkun og flokkunarkerfi timburs, ISO-staðla og mikilvægi þess að íslenskir staðlar og verklag taki mið af nýrri þekkingu á íslenskum viði.

Jafnframt var fjallað um stöðu skógræktar og viðaröflunar á Íslandi, umfang nytjaskóga og möguleika á grisjun og aukinni timburvinnslu á komandi árum. Með dæmum var sýnt hvernig innlend skógarauðlind getur skapað verðmæti, bæði fyrir byggingariðnað og einnig í tengslum við hönnun, útivist og samfélagslega notkun.

Steypa og kolefn­is­spor

Í umfjöllun um steypu var meðal annars horft til kolefnisspors hennar, sérstaklega vegna sementsframleiðslu. Kynntar voru leiðir til að draga úr losun, svo sem með markvissari sementsnotkun, notkun staðgengilsefna og aukinni endurnýtingu steypuúrgangs, auk hringrásarlausna í framleiðslu og framkvæmd. Áhersla var lögð á hvaða útfærslur eru tæknilega og rekstrarlega raunhæfar við íslenskar aðstæður.

Hönn­un, fram­kvæmd og um­hverf­is­á­hrif

Framkvæmdareynsla og hönnunarsjónarmið voru einnig í forgrunni, þar sem timbur í byggingaframkvæmdum var rætt út frá kostum, áskorunum og tækifærum. Meðal annars var fjallað um krosslímt timbur (KLT), límtré, blönduð burðarkerfi  og verkefni þar sem timbur og steypa eru notuð saman. Arkitektónísk dæmi sýndu hvernig efnisval getur mótað rýmisupplifun og gæði byggðs umhverfis.

Í lok viðburðarins voru byggingarefni borin saman á heildrænan hátt með tilliti til heilnæmis, hagkvæmni og umhverfisáhrifa. Þar var meðal annars horft til styrkleika, áskorana, kolefnisspors, endingar, framkvæmdartíma, hljóðvistar, möguleika til endurnýtingar og hringrásar. Bent var á að lykillinn að sjálfbærari mannvirkjagerð er að beita samsettum lausnum og nýta ólíka kosti efna á markvissan hátt.

Viðburðurinn var vel sóttur og vakti mikla athygli meðal sérfræðinga, hönnuða, fulltrúa iðnaðarins, stjórnvalda og annarra sem starfa á sviði mannvirkjagerðar.

HMS þakkar fyrirlesurum og þátttakendum kærlega fyrir framlag sitt og góða þátttöku. Upptaka af viðburðinum verður gerð aðgengileg á vef HMS.

Timbur vs steypa

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS