28. maí 2026
28. maí 2026
Nýjar leiðbeiningar um ljósvist komnar út
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Leiðbeiningar um ljósvist fyrir skipulagsgerð og leiðbeiningar fyrir ljósvist í byggingarreglugerð eru komnar út.
- Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við innleiðingu og framkvæmd á sviði dagsljóss, raflýsingar, ljósmengunar og útsýnis í byggingum.
- Ákvæði um ljósvist taka gildi fyrir framkvæmdir sem byggja á deiliskipulagi sem samþykkt er eftir 1. maí 2026. Frá og með 1. ágúst 2027 munu ákvæðin gilda um allar framkvæmdir sem sótt er um byggingarleyfi fyrir.
Út eru komnar nýjar leiðbeiningar um ljósvist fyrir skipulagsgerð og nýjar leiðbeiningar við byggingarreglugerð.
Nýverið tóku gildi ný ákvæði í byggingarreglugerð sem kalla á markvissa beitingu skipulags frá upphafi og nýtingu góðra o g sannreyndra lausna á öllum stigum ferlisins, frá skipulagi til hönnunar og framkvæmdar. Með breytingunum er stigið mikilvægt skref í átt að heilnæmari, öruggari og aðgengilegri byggð, þar sem gæði birtu og sjónræns umhverfis eru viðurkennd sem lykilþáttur í lífsgæðum fólks.
Ljósvist í byggingarreglugerð
Í 10.4. kafla byggingarreglugerðar eru nú að finna ákvæði um ljósvist, þar sem skilgreind eru markmið og kröfur er varða dagsbirtu, raflýsingu, ljósmengun og útsýni. Með breytingunum var stigið mikilvægt skref í átt að heilnæmari, öruggari og aðgengilegri byggð, þar sem gæði birtu og sjónræns umhverfis eru viðurkennd sem lykilþáttur í lífsgæðum fólks.
Ákvæði um ljósvist taka gildi fyrir framkvæmdir sem byggja á deiliskipulagi sem samþykkt er eftir 1. maí 2026. Frá og með 1. ágúst 2027 munu ákvæðin gilda um allar framkvæmdir sem sótt er um byggingarleyfi fyrir.
Leiðbeiningar við ljósvistarákvæði byggingarreglugerðar er ætlað að skýra kröfur reglugerðarinnar um ljósvist og styðja við samræmda túlkun og framkvæmd á sviði dagsljóss, raflýsingar og útsýnis í byggingum.
Í leiðbeiningunum er lögð áhersla á að ljósvist sé metin í samhengi við notkun rýma og þá starfsemi sem þar fer fram. Þar er meðal annars fjallað um samspil dagsljóss og raflýsingar, mikilvægi góðs útsýnis, forvarnir gegn glýju og hvernig lýsing getur haft áhrif á líðan, dægursveiflu og orkunotkun. Einnig eru settar fram skýringar á lykilhugtökum á borð við ljósvist, dagsljós, dagsbirtu og lýsingaráreiti. Þá eru í leiðbeiningunum hægt að nálgast ítarefni um 10% regluna og hvernig skuli staðið að leiðréttingum vegna umhverfisþátta og hvernig skuli virkniprófa raflýsingar og stýringar.
Leiðbeiningarnar eru fyrst og fremst ætlaðar hönnuðum, byggingarfulltrúum, framkvæmdaraðilum og öðrum sem koma að hönnun, uppbyggingu og eftirliti með mannvirkjum, en geta einnig nýst eigendum bygginga og öðrum hagsmunaaðilum. Með útgáfu þeirra er stigið mikilvægt skref í átt að skýrari regluverki og bættri framkvæmd á sviði ljósvistar í byggingum
Leiðbeiningar um ljósvist við byggingarreglugerð:
https://www.byggingarreglugerd.is/leidbeiningar/10-4-3-krofur-til-raflysingar
https://www.byggingarreglugerd.is/leidbeiningar/10-4-4-krofur-til-dagslysingar-i-vistarverum
https://www.byggingarreglugerd.is/leidbeiningar/10-4-5-krofur-vardandi-ljosmengun
https://www.byggingarreglugerd.is/leidbeiningar/10-4-6-krofur-um-utsyni-i-vistarverum
Viðmið um ljósvist fyrir skipulagsáætlanir
Leiðbeiningunum fyrir skipulagsgerð er ætlað að styðja hönnuði, sveitarfélög og skipulagsyfirvöld svo tryggja megi fullnægjandi ljósvist við undirbúning skipulagsáætlana.
Meðal þess sem tekið er fyrir í nýjum leiðbeiningum:
- Rými milli húsa, hlutföll milli breiddar gatna og hæðar húsa og samhengi við opin svæði milli bygginga.
- Dvalarsvæði lóðar á móti byggðum fermetrum.
- Dvalarsvæði í hlutfalli við gólfflöt íbúðarhúsnæðis.
- Fjarlægð milli bygginga m.t.t. sólarhæðar og skuggavarps.
- Jarðhæðir og svalir m.t.t. ljósvistar.
- Sólartímar á framhliðar húsa.
- Dýpt húskroppa
Í leiðbeiningum um ljósvist á skipulagsstigi eru m.a. sett fram töluleg viðmið sem hægt er að nýta við undirbúning á öllum stigum, þ.e. við undirbúning aðalskipulags, rammahluta aðalskipulags og deiliskipulags.
Vakin er athygli á kynningarfund þann 29. maí í húsnæði HMS að Borgartúni 21 þar sem leiðbeiningarnar verða kynntar. Þar munu sérfræðingar úr ólíkum áttum ræða leiðbeiningarnar, áskoranir og tækifæri er varða ljósvist.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



