8. október 2026
8. október 2026
Námskeið um löggildingu mannvirkjahönnuða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS og Iðan fræðslusetur bjóða upp á námskeið fyrir mannvirkjahönnuði sem hyggjast sækja um löggildingu HMS
- Námskeiðið hefst 27. október 2026 og fer fram á netinu
- Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026
HMS vekur athygli á námskeiði fyrir mannvirkjahönnuði sem hyggjast sækja um löggildingu til að gera aðal- og séruppdrætti samkvæmt 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Um er að ræða netnámskeið þar sem farið er yfir lög, reglugerðir og annað regluverk sem varðar störf mannvirkjahönnuða. Í kennslukerfinu er að finna ýmis stuðningsgögn og viðbótarefni sem tengjast umfjöllunarefnum námskeiðsins. Kennsluefnið er aðgengilegt allan námstímann og þátttakendur geta skipulagt námið eftir eigin þörfum innan námskeiðstímabilsins. Með þessu fyrirkomulagi gefst þátttakendum rúmur tími til að ljúka námskeiðinu.
Námskeiðið hefst 27. október 2026 og heildarlengd fyrirlestra er rúmar 20 klukkustundir. Námskeiðinu lýkur með krossaprófi á netinu þann 20. nóvember 2026 þar sem próftími er fjórar klukkustundir.
Námskeiðsgjald er 118.900 krónur.
Umsókn um námskeið
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026.
Starfsmaður HMS fer yfir umsókn og sendir staðfestingu á að viðkomandi uppfylli skilyrði eða ef óskað er eftir frekari gögnum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um bygginga- og mannvirkjagreinar og símenntun á sviðinu má finna á vef Iðunnar fræðsluseturs.
Þeir sem hyggjast sækja um löggildingu mannvirkjahönnuða eru hvattir til að skrá sig tímanlega og nýta sér námskeiðið til að afla sér þeirrar þekkingar sem krafist er við útgáfu löggildingar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



