10. apríl 2026

Mikið var um verklok nýrra íbúða í mars

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Byggingaráformum fækkar á milli mánaða
  • Meiri áhersla er á uppbyggingu íbúða sem eru 60-100 fermetrar að stærð
  • Kröftug fjölgun fullbúinna íbúða í mars síðastliðnum

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru nú skráðar 6.133 íbúðir í byggingu víðs vegar um landið sem er sambærilegur fjöldi og síðustu mánuði. Á sama tíma eru 560 byggingaráform skráð, það er íbúðir sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru enn óhafnar. Íbúðum í byggingaráformum fækkar verulega á milli mánaða en þær voru 938 talsins í mars.

Meiri áhersla er á upp­bygg­ingu íbúða sem eru 60-100 fer­metr­ar að stærð

Stærðardreifing íbúða í byggingu er að miklu leyti sambærileg við dreifingu fullbúinna íbúða í landinu, bæði meðal fjölbýlis og sérbýlis. Hjá fjölbýlum er uppbyggingin þó heldur þéttari í meðalstórum íbúðum, einkum á bilinu 60–100 fermetrar, þar sem hlutfall íbúða í byggingu er hærra en meðal fullbúinna íbúða. Á móti er hlutfall fjölbýlisíbúða í byggingu nokkuð lægra í stærðarflokknum 100–150 fermetrar. Hjá sérbýlum er hlutfall íbúða í byggingu hærra í stærðarflokknum 70–110 fermetrar, en lægra í flokkunum 110–150 fermetrar og 150–210 fermetrar. Að öðru leyti er dreifingin í meginatriðum sambærileg við dreifingu fullbúinna íbúða.

Þrefalt fleiri nýj­ar íbúð­ir urðu full­bún­ar í mars en í jan­ú­ar og febr­ú­ar

Í nýliðnum marsmánuði urðu 414 nýjar íbúðir fullbúnar sem er talsvert meiri fjöldi en í janúar og febrúar á þessu ári. Í janúar urðu 134 nýjar íbúðir fullbúnar og 130 í febrúar, þannig að fjöldinn í mars var rúmlega þrefalt meiri en í hvorum þessara mánaða. Þetta bendir til þess að verklok nýrra íbúða hafi verið óvenju mikil í mars eftir fremur rólega byrjun árs.

Þá er fjöldinn í mars 2026 jafnframt mikill í sögulegu samhengi, en frá byrjun árs 2020 hafa nýjar fullbúnar íbúðir aðeins þrisvar sinnum verið fleiri í stökum mánuði. Ef borið er saman við marsmánuði síðustu ára er sérstaklega áberandi hversu margar nýjar íbúðir urðu fullbúnar, líkt og sést á mynd hér að neðan.

Þrátt fyrir sterkan marsmánuð er samanlagður fjöldi nýrra fullbúinna íbúða á fyrstu þremur mánuðum ársins, 678 íbúðir, þó undir sama tímabili áranna 2024 og 2025. Mars vegur því þungt í uppgjöri fyrsta ársfjórðungs og dregur upp mynd af auknum verklokum undir lok hans. Upplýsingar um fullbúnar íbúðir má nálgast í mælaborði HMS um fullbúnar íbúðir.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS