2. maí 2024
12. apríl 2024
Mesta umfang brunatjóna frá aldamótum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Heildarupphæð bættra brunatjóna árið 2023 nam 6,4 milljörðum króna og var tæplega þrefalt hærri en árið 2022. Tryggingarfélög hér á landi hafa ekki þurft að greiða jafnháa upphæð vegna brunatjóna á einu ári frá árinu 2000. Þetta kemur fram í upplýsingum frá tryggingafélögum sem HMS hefur tekið saman.
Árlega tekur HMS saman yfirlit yfir eignatjón vegna eldsvoða er byggir á gögnum frá tryggingafélögum. Niðurstöður úr þeirri samantekt má sjá á mynd hér að neðan, sem sýnir heildarumfang bættra brunatjóna frá tryggingafélögunum á hverju ári.
Bætt brunatjón eftir árum 1981-2023
Líkt og myndin sýnir var umfang brunatjóna í fyrra töluvert yfir meðaltal síðustu ára, sem var um helmingi minna. Bætt brunatjón hafa ekki verið yfir 5 milljörðum króna á einu ári í tvo áratugi og leita þarf aftur til ársins 2000 til að finna ár þar sem umfang brunatjóna var meira en í fyrra. Á síðustu fjórum áratugum má einungis finna eitt annað ár þar sem heildarupphæð bættra brunatjóna nam yfir sex milljörðum króna, en það er árið 1989.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS