23. mars 2026
24. mars 2026
Marstalning 2026 sýnir merki um seiglu í byggingarmarkaðnum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðum í virkri uppbyggingu fjölgar á milli íbúðatalninga HMS og eru þær nú alls 6.988 talsins
- Vísbendingar eru um að byggingaraðilar fresti lokafrágangi íbúða vegna dræmrar sölu nýrra íbúða á markaði
- HMS gerir ráð fyrir að um 3.000 íbúðir verði fullbúnar ár hvert á tímabilinu 2026-2028
Alls eru 6.988 íbúðir í virkri uppbyggingu á landinu, en íbúðum í byggingu hefur nú fjölgað á milli talninga tvær talningar í röð. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr nýjustu talningu HMS á íbúðum í byggingu, sem voru kynntar á opnum fundi í dag. Lesa má niðurstöður talningarinnar með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Niðurstöður úr marstalningu HMS
Fjölgun íbúða í byggingu á milli talninga má að stórum hluta rekja til nýrra byggingarverkefna sem farið hafa af stað frá síðustu talningu en alls hófust framkvæmdir við byggingu 1.754 íbúða frá septembertalningu 2025. Nýjum framkvæmdum fjölgaði um 17% á milli talninga og hafa nýjar framkvæmdir milli talninga ekki verið fleiri frá því í septembertalningu ársins 2022.
Nýjum framkvæmdum fjölgaði mest á höfuðborgarsvæðinu
Fjölgun nýrra framkvæmda á milli talninga er drifin áfram af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu þar sem nýjum framkvæmdum fjölgaði um tæplega 24% á milli talninga. Á sama tíma og þeim fjölgaði um tæp 4% á landsbyggðinni. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hófust framkvæmdir við um það bil jafn margar íbúðir á milli talninga eins og í september 2025.
Á höfuðborgarsvæðinu voru nýjar framkvæmdir langflestar í Reykjavíkurborg, þar sem bygging á 661 íbúð hófst á milli septembertalningar 2025 og marstalningar 2026. Af öðrum sveitarfélögum á svæðinu voru nýjar framkvæmdir flestar í Garðabæ, þar sem byrjað var að byggja 256 íbúðir, og í Hafnarfirði, þar sem þær voru 183 talsins. Á sama tíma hófust framkvæmdir við mun færri íbúðir í Kópavogi og í Mosfellsbæ.
Íbúðum í byggingu fjölgaði mest í Reykjavík
Flestar íbúðir í byggingu eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu, eða tæplega 66% allra íbúða í byggingu. Alls voru 4.596 íbúðir í byggingu á svæðinu í nýjustu marstalningu og hafði þeim fjölgað um 8% frá síðustu talningu, eða um 320 íbúðir. Fjölgunin skýrist að mestu leyti af þróuninni í Reykjavíkurborg, þar sem íbúðum í byggingu fjölgaði um 11% frá septembertalningu 2025. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum í byggingu aðeins um 3% á milli talninga. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins stóð fjöldi íbúða í byggingu í stað á milli talninga, en annars staðar á landsbyggðinni fjölgaði þeim um 12% frá því í síðustu talningu.
Tæplega 38% allra íbúða í byggingu eru staðsettar í Reykjavíkurborg, eða 2.644 íbúðir. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu er uppbyggingin mest í Hafnarfirði og Garðabæ þar sem rúmlega 750 íbúðir eru í byggingu í hvoru sveitarfélaginu fyrir sig. Annars staðar á landinu er umfang íbúðauppbyggingar talsvert minna, enda er meirihluti landsmanna búsettur á höfuðborgarsvæðinu, eða tæp 64%.
Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í Reykjanesbæ og í Sveitarfélaginu Árborg, eða í kring um 370 íbúðir í hvoru sveitarfélaginu fyrir sig. Annars staðar á landsbyggðinni ber mest á uppbyggingu á Akureyri, þar sem um 340 íbúðir eru í byggingu um þessar mundir.
Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér að neðan.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




