5. nóvember 2026
Ný brunavarnaáætlun Þingeyjarsveitar tekur gildi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Þingeyjarsveitar hefur verið samþykkt og gildir í fimm ár
- Starfssvæði slökkviliðsins nær yfir 12.000 ferkílómetra
- Nú eru 74% slökkviliða með virka brunavarnaáætlun
Þann 22. október sl. var ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Þingeyjarsveitar samþykkt. Áætlunin var samþykkt af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og HMS. Brunavarnaáætlun er öflugt tæki til að skapa heildarsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðsins og hversu vel það er í stakk búið til að takast á við hættur á sínu starfssvæði til að vernda líf og eignir manna.
Í brunavarnaáætluninni kemur fram að starfssvæði slökkviliðs Þingeyjarsveitar er yfir 12.000 ferkílómetrar að stærð. Stærstu áhætturnar í sveitarfélaginu eru Vaðlaheiðargöng, virkjani og stór hótel. Einnig er talsverð áhætta vegna hópslysa í sveitarfélaginu vegna mikillar umferðar á ferðamannastöðum. Þetta kallar á öflugt, vel mannað og vel þjálfað slökkvilið. Hér má lesa brunavarnaáætlunina í heild:
Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Þingeyjarsveita
Hörður Sigurðsson slökkviliðsstjóri Þingeyjarsveitar sagði við þetta tækifæri:
„Þingeyjarsveit hefur samþykkt brunavarnaráætlun sveitarfélagsins. Öflug og vel ígrunduð brunavarnaráætlun er grundvallarþáttur í því að tryggja öryggi íbúa, mannvirkja og starfsemi sveitarfélagsins. Þetta á ekki síst við í víðfeðmu og dreifbýlu sveitarfélagi eins og Þingeyjarsveit, þar sem byggð er dreifð, vegalengdir miklar og viðbragðstími getur verið lengri en í þéttbýlli sveitarfélögum. Við slíkar aðstæður skiptir markvisst skipulag brunavarna, mannafla, búnaðar og viðbragðsgetu sérstaklega miklu máli.
Við gerð brunavarnaráætlunarinnar naut Þingeyjarsveit góðrar aðstoðar og faglegrar ráðgjafar starfsmanna brunavarnarsviðs HMS. Sveitarfélagið vill koma á framfæri sérstökum þökkum til starfsmanna sviðsins fyrir þeirra mikilvæga framlag, leiðbeiningar og gott samstarf við gerð áætlunarinnar.“
74 prósent slökkviliða með virka brunavarnaáætlun
Á þessu ári hafa einnig verið samþykktar brunavarnaáætlanir hjá Brunavörnum Suðurnesja, Brunavörnum Árnessýslu, Slökkviliði Múlaþings og Slökkviliði Langanesbyggðar. Hlutfall slökkviliða landsins með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 74 prósent og er markmiðið að 80 prósent slökkviliða séu með samþykkta brunavarnaáætlun fyrir árslok. Hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 96 prósent og hefur aldrei verið hærra. Í byrjun árs 2026 voru um 90 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun.
Að hafa samþykktar brunavarnaáætlanir er mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa landsins, þar sem þær lýsa viðbúnaði slökkviliða og eiga þar með að tryggja betra öryggi.
HMS óskar Slökkviliði Þingeyjarsveitar og íbúum sveitarfélagsins innilega til hamingju með nýja brunavarnaáætlun.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





