25. febrúar 2026

Lögbýlaskrá fyrir árið 2025 er komin út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Alls voru 6.808 lögbýli skráð á Íslandi um síðustu áramót
  • Nýjar lögbýlisskráningar voru 9 á síðasta ári
  • Flest lögbýli eru skráð í sveitarfélaginu Skagafirði

Lögbýlaskrá fyrir árið 2025 er komin út, en samkvæmt henni eru 6.808 lögbýli á Íslandi og yfir árið voru gerðar alls 9 breytingar á árinu 2025, þar sem 9 ný lögbýli voru skráð en ekkert lögbýli var afskráð. Hægt er að nálgast skrána í PDF-formi með því að smella á hnappinn hér að neðan, en hægt er að smella á þennan hlekk til að nálgast lögbýlaskrá í csv-formi. 

Lögbýlaskrá fyrir 2025 má nálgast hér

Lögbýlaskrá er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingabók og fasteignaskrá. Útgáfan er á vegum Matvælaráðuneytisins en samkvæmt 2. mgr. 26. gr. jarðalaga nr. 81/2004 er ráðuneytinu heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrárinnar.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast útgáfu lögbýlaskrár þar sem haldið er utan um skrána í réttindahluta fasteignaskrár sem stofnunin meðal annars rekur.

Hvað er lög­býli?

Samkvæmt jarðalögum teljast þau lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi þinglýst. Við þinglýsinguna fær viðkomandi eign sérstaka merkingu í þinglýsingarhluta fasteignaskrár og birtist í næstu lögbýlaskrá sem gefin verður út. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS