23. apríl 2026

Loftslagsaðlögun og líffræðilegur fjölbreytileiki: aukinn kraftur í innleiðingu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS vinnur að tveimur aðgerðum í Vegvísi: loftslagsaðlögun og aukinn líffræðilegan fjölbreytileika í byggðu umhverfi.
  • Norrænt samstarf (NSC) styður vinnuna og kortleggur hvernig loftslagsaðlögun er tekin inn í regluverk á Norðurlöndum.
  • Loftslagsaðlögun verður í brennidepli á Nordic Climate Forum for Construction í Reykjavík 30. september 2026.

HMS vinnur nú meðal annars að tveimur aðgerðum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030: annars vegar aðgerð 5.3.7 um líffræðilegan fjölbreytileika í hinu byggða umhverfi og hins vegar aðgerð 5.3.9 um hönnun mannvirkja fyrir aðlögun að loftslagsbreytingum. Aðgerð 5.3.7 á að stuðla að mælanlegum auknum líffræðilegum fjölbreytileika í byggðu umhverfi og draga úr heildarlosun gróðurhúsalofttegunda með markvissum, framkvæmalegum aðgerðum. Aðgerð 5.3.9 hefur það markmið að tryggja að byggingar og innviðir séu hannaðir með tilliti til loftslagsbreytinga, með áherslu á áhættuminnkun og langtíma sjálfbærni. Í framkvæmd felst þetta í því að HMS vinnur að útgáfu leiðbeininga og viðmiða sem nýtast beint í verkefnum og ákvarðanatöku hjá sveitarfélögum, verkkaupum, hönnuðum og öðrum hagaðilum.

Nor­rænt sam­starf styð­ur við vinn­una

Vinnan tengist jafnframt norrænu samstarfi innan Nordic Sustainable Construction (NSC), þar sem HMS leiðir vinnupakkann Climate. Í einum af verkþáttunum þar er unnið að því að kortleggja hvernig loftslagsaðlögun er í dag tekin inn í reglur, leiðbeiningar og verklag í mannvirkjagerð á Norðurlöndum, og hvar helstu tækifæri eru til að styrkja samræmi og innleiðingu. Reynslan sýnir að loftslagsaðlögun er oft þegar til staðar í regluverki, til dæmis í kröfum um öryggi, rakavarnir og innivist, en að hún er sjaldnar sett fram sem skýr heildstæð nálgun með sameiginlegum skilgreiningum, viðmiðum og eftirfylgni.

Líffræðilegur fjölbreytileiki og loftslagsviðnámsþróttur eru oft samofin markmið í þéttbýli. Með því að gefa náttúrunni rými í borgum og bæjum, til dæmis með blágrænum innviðum og náttúrumiðuðum lausnum, má oft bæði draga úr loftslagsáhættu (t.d. vegna ofanvatns og hitaálags) og bæta vistkerfisgæði, búsvæði lífvera og tengsl vistkerfa. Lykilatriði í þessari vinnu er að þýða markmið yfir í mælanleg viðmið og hagnýt innleiðingarverkfæri. Þar undir falla meðal annars skýr kröfuviðmið um afköst ofanvatnslausna, leiðir til að styðja við vistkerfislausnir í hönnun og framkvæmd, og skýrari tenging við rekstur, viðhald og eftirlit svo árangur haldist til lengri tíma. Þetta fellur að markmiðum aðgerða 5.3.7 og 5.3.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030.

Lofts­lags­að­lög­un á dag­skrá á Nor­dic Clima­te For­um for Construct­ion 30. sept­em­ber

Loftslagsaðlögun og viðnámsþróttur í mannvirkjagerð verður jafnframt í brennidepli á Nordic Climate Forum for Construction (NCFC) í Reykjavík 30. september 2026. Lykilaðilum og sérfræðingum frá Norðurlöndunum verður boðið til þátttöku og hluti dagskrár verður streymdur. NCFC er sameiginlegur norrænn vettvangur þar sem yfirvöld hittast til að ræða sjálfbæra mannvirkjagerð og heldur HMS utan um ráðstefnuna þetta árið. Við hlökkum til að deila frekari upplýsingum þegar dagskráin tekur á sig endanlega mynd - fylgist með.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS