24. febrúar 2026

Lífsferilsgreiningar (LCA – Life Cycle Assessment): Krafa í byggingarreglugerð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ný krafa um lífsferilsgreiningu (LCA) tók gildi í september 2025 sem skilyrði fyrir byggingarleyfi og markar tímamót í gagnadrifinni stýringu kolefnisspors mannvirkja
  • Steinsteypa vegur þungt í kolefnisspori bygginga, en með markvissri hönnun, breyttum forskriftum og betri efnisnýtingu er hægt að ná verulegum samdrætti
  • Innleiðing LCA skapar bæði áskoranir og tækifæri fyrir steinsteypuiðnaðinn – aukið gagnsæi, nýsköpun og þróun lágkolefnislausna til framtíðar

Krafa um lífsferilsgreiningu við útgáfu byggingarleyfa markar tímamót í íslenskri mannvirkjagerð. Hún gerir kolefnisspor sýnilegt, styður við markvissari efnisnotkun og beinir athyglinni að þeim ákvörðunum sem skipta miklu máli. Fyrir steinsteypugeirann felur þetta ekki aðeins í sér áskorun, heldur einnig skýrt tækifæri til að þróa betri lausnir, efla samkeppnishæfni og leggja sitt af mörkum til sjálfbærari byggðar.

Tæki­færi og áskor­an­ir fyr­ir stein­steypu­iðn­að­inn

Byggingariðnaðurinn stendur á tímamótum. Auknar kröfur um sjálfbærni, gagnsæi og ábyrgð kalla á ný vinnubrögð, þar sem ákvarðanir byggja í auknum mæli á gögnum fremur en hefð. Mikilvæg breyting tók gildi í september 2025, krafa um lífsferilsgreiningu sem skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis. Með þessari kröfu er stigið stórt skref í átt að gagnadrifnum og markvissari aðgerðum til að draga úr kolefnisspori mannvirkja á Íslandi.

Steinsteypa gegnir lykilhlutverki í íslenskri mannvirkjagerð bæði fyrir uppbyggingu mannvirkja og innviða. Þar liggja jafnframt gríðarleg tækifæri til úrbóta. Innleiðing LCA veitir sameiginlegt mælitæki sem gerir kolefnisspor sýnilegt, samanburðarhæft og umfram allt stýranlegt. Því er mikilvægt að steinsteypuiðnaðurinn tileinki sér verklag þar sem áhersla er lögð á lífsferilsgreiningar og samdrátt kolefnisspors mannvirkja. LCA-innleiðingin veitir okkur tól til að mæla kolefnisspor sem býr til grundvöll og hvata fyrir hönnun með lægra kolefnisspor.

Hvað er LCA í mann­virkja­gerð? – Að­ferða­fræði til að meta um­hverf­is­á­hrif bygg­inga

LCA er kerfisbundin aðferð sem metur umhverfisáhrif byggingar yfir allan lífsferil hennar, frá hráefnavinnslu og framleiðslu efna til byggingarframkvæmdar, reksturs, viðhalds, og að lokum niðurrifs og förgunar eða endurnýtingar efna. Markmiðið er að leggja mat á heildaráhrif byggingarinnar.

Með því að láta LCA verða hluta af hönnunarferlinu verður hægt að meta umhverfisáhrif fyrr í ferlinu, ekki eftir á. Þetta skapar hvata og svigrúm til að bera saman lausnir og velja lausnir sem draga úr kolefnisspori byggingarinnar.

Stefnt er að því að setja kröfu um skil á LCA við lokaúttekt mannvirkja árið 2027. Þar með verður hægt að safna gögnum um raunverulegt kolefnisspor mannvirkja á Íslandi, að teknu tilliti til breytinga á hönnunartíma og framkvæmd. Að auki er stefnt að því að setja hámarksgildi á losun mannvirkja þegar krafan um seinni skil bætist við.

Lífsferilsgreining nær til allra lífsferilsfasa mannvirkja

Hvers vegna veg­ur steypa þungt í kolefn­is­spori bygg­inga?

Rannsóknir og reynsla sýna að oft megi rekja um 50–60% af innbyggðu kolefnisspori hefðbundinna mannvirkja til steypu. Það er mikilvægt að átta sig á því hvaða þættir í framleiðslu og notkun steinsteypu valda mestu kolefnisspori, eftirfarandi eru helstu þættir:

  1. Sement – Framleiðsla sements er losunarfrekt ferli. Losun verður bæði vegna efnahvarfa við afkölkun kalksteins og vegna mikillar orkuþarfar við brennslu í ofnum sem ná um 1450°C.
  2. Járnabinding. Framleiðsla stáls eykur kolefnisspor steyptra byggingarhluta með járnabindingu.
  3. Of mikil varfærni í hönnun. Hefðbundin hönnun, öryggismörk og of stífar forskriftir geta leitt til óþarfa steypunotkunar, óþarfa járnabindingar og notkun steypu með meiri styrk en raunverulega er þörf á.
  4. Mikið magn. Steypa er notuð í mjög miklu magni í byggingum, meðal annars í undirstöðum, plötum, burðarvirkjum og veggjum. Þrátt fyrir tiltölulega lága losun á hvert kíló miðað við t.d. stál, leiðir heildarmassi steypunnar til mikillar heildarlosunar.
  5. Takmarkað svigrúm til efnisskipta í burðarvirkjum. Burðarþols- og endingarkröfur leiða oft til þess að steypa er eini raunhæfi valkosturinn og setja einnig skorður á hversu mikið má draga úr sementsmagni, sérstaklega í burðarhlutum og undirstöðum.
  6. Kröfur um hraða og byggingaraðferðir. Hröð byggingarframkvæmd krefst oft meiri sementsnotkunar eða hraðharðnandi bindiefna, sem eykur losun.

Þessir þættir sýna að kolefnisspor steypu ræðst ekki aðeins af efninu sjálfu, heldur einnig af hönnunarákvörðunum, forskriftum og framkvæmd.

Framleiðsla sements leiðir til losunar koltvísýrings vegna afkölkunar kalksteins og orkunotkunar

Helstu leið­ir til að draga úr kolefn­is­spori steypu í bygg­ing­um

LCA greiningar sýna að verulegur samdráttur í kolefnisspori steypu er mögulegur án þess að fórna burðarþoli, endingargæðum eða hagkvæmni. Meðal helstu aðgerða eru:

1)      Blöndun steypu með lægra sements- og klinkerhlutfalli. Vel hönnuð steypublanda getur dregið verulega úr losun án þess að skerða eiginleika.

2)      Betri efnisnýting. Með markvissri hönnun má draga úr heildarmagni steypu, til dæmis með skilvirkari burðarvirkjum, grennri burðarhlutum og betri nýtni efnis.

3)      Val á viðeigandi steypublöndu og styrk fyrir mismunandi hlutverk. Steypa er oft forskrifuð með meiri styrk eða endingareiginleikum en nauðsynlegt er. Að laga blöndur nákvæmlega að álags- og umhverfisskilyrðum gerir kleift að minnka sementsmagn og auka hlutfall íblöndunarefna.

4)      Bætt framkvæmd og stýring hörðnunar. Með minni kröfum um hraða hörðnun steypu opnast svigrúm til aukinnar notkunar bindiefna með lægra kolefnisspor. Góð gæðastýring í framkvæmd dregur jafnframt úr sóun.

Þetta sýnir að stór hluti lausnanna liggur í samspili hönnunar, efnisvals og framkvæmdar.

Skilvirk notkun á steypu

Inn­leið­ing LCA-kröf­unn­ar – hvað þýð­ir hún fyr­ir stein­steypu­iðn­að­inn?

Krafan um lífsferilsgreiningar hefur áhrif á alla virðiskeðjuna. Fyrir steinsteypugeirann birtast áhrifin meðal annars í:

·       Auknum hvata til að draga úr klinkerhlutfalli í steypu. Hönnuðir og verktakar munu í auknum mæli óska eftir sementslausnum með lægra kolefnisspor, aukinni notkun íblöndunarefna og endurunnum fylliefnum sem uppfylla gæðakröfur.

·       Aukinni þörf fyrir áreiðanleg gögn. LCA kallar á staðlaðar umhverfisyfirlýsingar (EPD), rekjanleika hráefna og að gögn séu tiltæk á rafrænu, stöðluðu formi.

Þetta eykur gagnsæi, styrkir traust og skapar hvata til vöruþróunar og nýsköpunar.Innleiðing LCA-kröfunnar – hvað þýðir hún fyrir steinsteypuiðnaðinn?

Krafan um lífsferilsgreiningar hefur áhrif á alla virðiskeðjuna. Fyrir steinsteypugeirann birtast áhrifin meðal annars í:

  • Auknum hvata til að draga úr klinkerhlutfalli í steypu. Hönnuðir og verktakar munu í auknum mæli óska eftir sementslausnum með lægra kolefnisspor, aukinni notkun íblöndunarefna og endurunnum fylliefnum sem uppfylla gæðakröfur.
  • Aukinni þörf fyrir áreiðanleg gögn. LCA kallar á staðlaðar umhverfisyfirlýsingar (EPD), rekjanleika hráefna og að gögn séu tiltæk á rafrænu, stöðluðu formi.
  • Þetta eykur gagnsæi, styrkir traust og skapar hvata til vöruþróunar og nýsköpunar.

Tæki­færi til ný­sköp­un­ar og sam­starfs

Innleiðing LCA skapar einnig tækifæri. Á Íslandi eru forsendur fyrir þróun umhverfisvænni steinsteypulausna, meðal annars vegna hreinnar raforku, stuttra flutningsleiða og öflugs samstarfs iðnaðar, háskóla og opinberra aðila. Auknar kröfur um gögn og greiningar geta:

  • eflt rannsóknir á lágkolefnissteypu og endurnýtingu steypu
  • stutt við þróun staðbundinna íblöndunarefna
  • bætt stafræna verkferla og gæðastjórnun

Steinsteypugeirinn getur þannig verið í fararbroddi í umbreytingu mannvirkjagerðar til framtíðar.

Nánari upplýsingar um LCA aðferðafræðina skv. kröfu í byggingarreglugerð er að finna á leiðbeiningavef HMS, https://hms.is/lifsferilsgreining. Fyrirspurnir varðandi lífsferilsgreiningar má senda á lca@hms.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS