6. júlí 2026
7. júlí 2026
Innsendar húsnæðisáætlanir ná til 98 prósent landsmanna
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- 57 af 62 sveitarfélögum skiluðu inn húsnæðisáætlun fyrir árið 2026
- Innsendar áætlanir ná til rúmlega 98 prósent landsmanna
- Miðspá húsnæðisáætlana gerir ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 8 þúsund í ár og að byggja þurfi 3.600 nýjar íbúðir
Vinna við húsnæðisáætlanir sveitarfélaga fyrir árið 2026 er nú á lokametrunum. Frestur til að skila inn áætlun er liðinn og bárust áætlanir frá 57 af 62 sveitarfélögum. Þegar allar innsendar áætlanir hafa hlotið endanlega afgreiðslu sveitarstjórna munu þær ná til rúmlega 98 prósent landsmanna. Samkvæmt húsnæðisáætlunum gera sveitarfélögin ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 8 þúsund og að byggja þurfi 3.600 nýjar íbúðir í ár.
Lokað hefur verið fyrir skil húsnæðisáætlana
Frestur til að skila húsnæðisáætlun til HMS fyrir árið 2026 er liðinn. Alls bárust áætlanir frá 57 sveitarfélögum en þrjár þeirra bíða enn formlegrar samþykktar sveitarstjórna. Kópavogsbær og Hafnarfjarðarkaupstaður eru á meðal þeirra en stefnt er að því að samþykkja áætlanirnar á fundum sveitarstjórnanna síðar í mánuðinum. Þegar það hefur verið gert munu gildar húsnæðisáætlanir ná til rúmlega 98 prósent landsmanna.
Fimm sveitarfélög skiluðu ekki húsnæðisáætlun fyrir árið 2026, þar á meðal Ísafjarðarbær, Mýrdalshreppur, Reykhólahreppur og Fljótdalshreppur. Grindavíkurbær skilaði ekki áætlun vegna óvissu í kjölfar jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga.
Gera ráð fyrir að íbúum fjölgi um 8 þúsund og að byggja þurfi 3.600 nýjar íbúðir
Þau sveitarfélög sem skiluðu inn húsnæðisáætlun fyrir árið 2026 gera ráð fyrir að íbúum muni fjölga um rétt rúmlega 8 þúsund manns í ár, eða um 2,2 prósent samkvæmt miðspá. Til þess að mæta þeirri fólksfjölgun gera sveitarfélögin ráð fyrir að byggja þurfi um 3.600 íbúðir. Á myndinni hér að neðan má sjá áætlaða íbúðaþörf sveitarfélaganna fram til ársins 2035.
Það sem af er ári hafa tæplega 1.500 íbúðir orðið fullbúnar, sem samsvarar tæplega 42 prósent af áætlaðri þörf ársins. Samkvæmt upplýsingum um lögheimilisskráningar frá Þjóðskrá hefur íbúum sveitarfélaganna hins vegar einungis fjölgað um rúmlega 2 þúsund, eða um 0,5 prósent, á tímabilinu frá 1. janúar til 1. júní 2026.
Upplýsingar frá Hagstofu um mannfjölda í lok annars ársfjórðungs hafa ekki verið birtar. Þegar þær liggja fyrir mun HMS birta samantekt um hvernig gengið hefur að mæta markmiðum húsnæðisáætlana sveitarfélaganna á fyrri helmingi ársins.
Húsnæðisáætlanir varpa ljósi á stöðu húsnæðismála
Húsnæðisáætlanir eiga að gefa heildstæða mynd af stöðu húsnæðismála í hverju sveitarfélagi. Í þeim er að finna greiningu á eftirspurn og framboði ólíkra húsnæðistegunda, mat á framtíðarþörf íbúðarhúsnæðis og umfjöllun um hvernig sveitarfélög hyggjast mæta húsnæðisþörf heimila til skemmri og lengri tíma. Markmið áætlananna er að styðja við markvissa uppbyggingu og auka húsnæðisöryggi.
Á vef HMS má nálgast mælaborð húsnæðisáætlana. Þar er bæði að finna samantekt á öllum innsendum húsnæðisáætlunum og nánari upplýsingar um húsnæðisáætlun hvers sveitarfélags fyrir sig.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




