2. nóvember 2026
Íbúðauppbygging á Vestfjörðum þarf að halda í við fólksfjölgun
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Aðeins níu íbúðir voru í byggingu á Vestfjörðum í september þrátt fyrir væntingar um áframhaldandi fólksfjölgun
- Mannvirkjaskrá á að einfalda gagnaskil og draga úr tvíverknaði
- Skipulag íbúðabyggðar ætti að taka meira mið af áætlaðri húsnæðisþörf og langtímasýn sveitarfélaga
Góð mæting var á opinn fund HMS og Tryggðrar byggðar á Ísafirði fimmtudaginn 29. október síðastliðinn. Fundurinn var hluti af fundaröð sem HMS og Tryggð byggð standa fyrir í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaganna um stöðu og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar og mannvirkjamála.
Á fundinum var fjallað um húsnæðismarkaðinn á Vestfjörðum auk þess sem helstu verkefni HMS í mannvirkja- og skipulagsmálum voru kynnt. Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, fjallaði jafnframt um stöðuna í sveitarfélaginu.
Fólki fjölgar en fáar íbúðir eru í byggingu
Tryggvi Magnússon, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS, fór yfir stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur á Vestfjörðum. Eftir áratugi fólksfækkunar hefur íbúum landshlutans aftur fjölgað og íbúðauppbygging tekið við sér. Fasteignamarkaðurinn hefur þó kólnað líkt og annarstaðar samhliða vaxtahækkunum frá árinu 2022.
Í september voru aðeins níu íbúðir í byggingu á Vestfjörðum, samanborið við 74 á sama tíma árið 2023. Flestar íbúðirnar eru jafnframt skammt á veg komnar. Húsnæðisáætlanir vestfirskra sveitarfélaga gera hins vegar ráð fyrir áframhaldandi fólksfjölgun og meiri íbúðaþörf en uppbygging síðustu ára hefur að jafnaði mætt.
Hár vaxtakostnaður getur gert uppbyggingaraðilum erfiðara fyrir að mæta aukinni íbúðaþörf með nýbyggingum. Víða á Vestfjörðum bætist við að byggingarkostnaður getur verið hærri en markaðsverð íbúða, en sá vandi var til staðar áður en vextir hækkuðu. Fólksfjölgun og aukin íbúðaþörf tryggja því ekki einar og sér fjárhagslegar forsendur fyrir nýbyggingum.
Þar geta úrræði HMS, meðal annars landsbyggðarlán, stofnframlög og sérstök byggðaframlög hjálpað til við að rjúfa kyrrstöðu. Húsnæðisáætlanir eru grunnur að því að beina stuðningi þangað sem þörfin er mest. Aðeins fimm af átta sveitarfélögum á Vestfjörðum höfðu hins vegar skilað og staðfest húsnæðisáætlun á árinu. Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi þess að sveitarfélög uppfæri áætlanir sínar og meti hvort fyrirhuguð uppbygging og lóðaframboð samræmist íbúðaþörf.
Mannvirkjaskrá á að einfalda ferli og bæta gögn
Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS, kynnti skrána og næstu skref í þróun hennar. Mannvirkjaskrá heldur utan um upplýsingar um stærð og eiginleika mannvirkja, stöðu framkvæmda, byggingarleyfi og úttektir. Henni var komið á til að samræma skráningu og ferli á landsvísu, draga úr tvískráningu og auðvelda upplýsingaflæði milli sveitarfélaga, fagaðila og stjórnvalda.
Áfram verður unnið að því að samræma hvernig sótt er um byggingarleyfi. Í framhaldinu verður unnið að frekari tengingum milli kerfa og aukinni sjálfvirkni, meðal annars við sannprófun upplýsinga. Til lengri tíma er horft til móttöku stafrænna hönnunarlíkana (BIM) og þess að gögnin nýtist yfir líftíma mannvirkja, auk þess að styðja eftirlit, áætlanagerð og stefnumótun.
Húsnæðis- og skipulagsáætlanir þurfa að tala betur saman
Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri sviðs skipulags og umhverfismats hjá HMS, fór yfir helstu verkefni á döfinni í skipulagsmálum. Þar er meðal annars unnið að aukinni samþættingu húsnæðisáætlana og skipulags, svo að skipulag íbúðabyggðar taki betur mið af áætlaðri húsnæðisþörf og langtímasýn sveitarfélaganna.
Í kynningunni kom fram að stefnt sé að innleiðingu stafrænna undirritana skipulagsáætlana vorið 2027 og að greiningarvinna og samráð vegna heildarendurskoðunar skipulagslaga hefjist í upphafi næsta árs. Jafnframt var fjallað um mikilvægi þess að sveitarfélög meti þörf á endurskoðun aðalskipulags í kjölfar sveitarstjórnarkosninga, meðal annars með hliðsjón af húsnæðisþörf, loftslagsbreytingum og náttúruvá.
Einnig kom fram að samkvæmt skipulagsgátt voru 44 mál á Vestfjörðum í vinnslu. Gáttin veitir almenningi aðgang að skipulagsmálum, umhverfismati og framkvæmdaleyfum á einum stað. Þar er hægt að kynna sér gögn, senda inn athugasemdir og gerast áskrifandi að málum eða tilkynningum um ný mál á tilteknum svæðum.
Fleiri fundir fram undan um land allt
Fundaröð HMS og Tryggðar byggðar heldur áfram á næstu vikum. Næstu fundir verða eftirfarandi:
• Reyðarfjörður: 3. nóvember kl. 11:45.
• Akureyri: 9. nóvember kl. 12:15.
• Akranes: 13. nóvember kl. 11:45.
Í seinni hluta nóvember eru jafnframt fyrirhugaðir fundir á Sauðárkróki, Selfossi, í Reykjanesbæ og Reykjavík. Nánari upplýsingar verða auglýstar síðar.
Fundirnir eru opnir öllum og áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





